Ekki allir öruggir með að Sigmundur Davíð sé „óskoraður leiðtogi“

Sigurður ingi Sigmundur Davíð
Auglýsing

Fæstir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins treysta sér til að lýsa yfir stuðn­ingi við annað hvort Sig­urð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra eða Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann flokks­ins, vegna fyr­ir­liggj­andi for­manns­kjörs sem fram mun fara á flokks­þingi í byrjun októ­ber. Willum Þór Þórs­son, þing­maður flokks­ins, segir að það sé óró­leiki og að þing­flokkur Fram­sóknar hafi talað opin­skátt um það. „Það eru ekki allir öruggir með, eftir það sem á undan hefur geng­ið, að Sig­mundur Davíð sé óskor­aður leið­tog­i.“ Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Sig­urður Ingi lýsti því yfir í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram gegn Sig­mundi Davíð á flokks­þing­inu. Hann tók ákvörðun sína vegna þess óró­leika sem verið hefur í kringum for­ystu flokks­ins. Til­kynn­ing Sig­urðar Inga kom í kjöl­far þing­flokks­fundar Fram­sókn­ar­flokks­ins sem boðað var til í gær með nær engum fyr­ir­vara og stóð yfir í á fjórða klukku­tíma. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans voru þar rædd ýmis atriði tengd Sig­mundi Davíð sem þing­flokk­ur­inn var ósáttur við. Flest tengd­ust þau yfir­lýs­ingum og gjörðum hans í kjöl­far Wintris-­máls­ins og eftir end­ur­komu hans í stjórn­mál eftir leyfi síð­sum­ars. Þá var líka óánægja með það að Sig­mundur Davíð hefur lítið sem ekk­ert rætt hið svo­kall­aða Wintris-mál við þing­flokk­inn frá því að það kom upp í byrjun apr­íl, og leiddi til þess að hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

Frammi­staða Sig­mundar Davíð í fyrsta leið­togaum­ræðu­þætti RÚV, sem fram fór á fimmtu­dags­kvöld, olli líka mörgum sam­flokks­mönnum hans áhyggj­um. Innan Fram­sóknar telja margir ein­boðið að kosn­inga­bar­átta flokks­ins muni hverf­ast um Sig­mund Davíð og aflands­fé­laga­mál hans verði hann áfram for­mað­ur. Þess vegna hafa margir skorað á Sig­urð Inga að bjóða sig fram gegn hon­um. 

Auglýsing

Búist hafði verið við fram­boðs­yf­ir­lýs­ingu Sig­urðar Inga frá því að hann steig í pontu á mið­stjórn­ar­fundi á Akur­eyri fyrr í þessum mán­uði og lýsti því yfir að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir því að sitja áfram sem vara­for­maður vegna erf­ið­leika í sam­skiptum við for­ystu flokks­ins. Þar átti hann sér­stak­lega við sam­skipti sín og Sig­mundar Dav­íðs. 

Eng­inn þing­maður - en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur 19 slíka - hefur lýst opin­ber­lega yfir stuðn­ingi við for­manns­fram­boð Sig­urðar Inga. Það hefur hins vegar Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, gert og ­Svein­björn Eyj­ólfs­son, for­stöðu­maður Nauta­stöðvar Bænda­sam­taka Íslands, dró for­manns­fram­boð sitt til baka í gær. Hann segir við Morg­un­blaðið að hann styðji Sig­urð Inga heils­hug­ar.

Nokkrir hafa hins vegar lýst yfir stuðn­ingi við Sig­mund Dav­íð. Þar á meðal er Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, sem er að íhuga vara­for­manns­fram­boð. Hún hefur lengi verið í nán­asta sam­starfs­manna­hring Sig­mundar Dav­íðs og á meðal hans helstu trún­að­ar­manna í stjórn­mál­um. Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur einnig lýst yfir skil­yrð­is­lausum stuðn­ingi við sitj­andi for­mann. Þá hefur Vig­dís Hauks­dótt­ir, frá­far­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefnd­ar, sagt að hún eigi von á stór­sigri Sig­mundar Dav­íðs. Hún sagði við mbl.is í gær að ­flokk­ur­inn hafi „ein­fald­lega ekki efni á því að fórna sínum besta manni í ein­hverjum svona inn­an­húss­víg­um. Sig­mundur Davíð er mjög verð­mætur fyrir íslenska þjóð með sína fram­tíð­ar­sýn og heild­ar­yf­ir­sýn, bæði á lands- og heims­mál.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None