Tvær stuðningssíður Sigmundar Davíðs skráðar hjá fjölmiðlafyrirtæki

Forystusíður
Auglýsing

Tvær vef­síður sem settar hafa verið upp til stuðn­ings Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, eru skráðar á fjöl­miðla­fyr­ir­tækið For­ystu ehf. sem rekur fjöl­mið­il­inn Vegg­ur­inn.is. Síð­urnar tvær, Islandi­allt.is og Panama­skjol­in.is, voru skráðar ann­ars vegar í lok júlí og hins vegar í lok ágúst. Önn­ur, Islandi­allt.is, birtir jákvæðar færslur um stjórn­mála­mann­inn Sig­mund Dav­íð. Á vefnum kemur fram að hann hafi verið „settur saman og rek­inn af hópi ein­stak­linga úr ýmsum áttum með ólíkar stjórn­mála­skoð­anir sem eiga það sam­eig­in­legt að vera stuðn­ings­menn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar“.

Hin, Panama­skjol­in.is, fjallar um skýr­ingar Sig­mundar Dav­íðs og eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dótt­ur, á Wintris-­mál­inu svo­kall­aða. Á und­ir­síðu vefs­ins segir að um stað­reyndir um aðkomu Sig­mundar Dav­íðs að mál­inu sé að ræða. „Efni síð­unnar er unnið upp úr þeim upp­lýs­ingum sem fram hafa komið um málið und­an­farna mán­uði, bæði frá Sig­mundi og Önnu sjálf­um, frá skatt­yf­ir­völd­um, umboðs­manni Alþing­is, end­ur­skoð­end­um, fjöl­miðlum og fleiri aðil­um.

Efnið er sett fram í formi svara við algengum spurn­ingum í þeirri við­leitni að það reyn­ist ein­fald­ara aflestr­ar. Vefnum er við­haldið af stuðn­ings­mönnum Sig­mundar og Önn­u“.

Auglýsing

Mikið af því efni sem birt­ist um stjórn­mál á fjöl­miðl­inum Vegg­ur­inn.is er líka til stuðn­ings mál­staðar Sig­mundar Dav­íðs í Wintris-­mál­inu. Í nýlegum pistli sem birt­ist þar er til að mynda spurt hvers vegna kjós­endur ættu að verð­launa Fram­sókn­ar­flokk­inn fyrir að fella Sig­mund Dav­íð. Þeirri spurn­ingu er svarað með eft­ir­far­andi hætti: „And­skotar Sig­mundar Dav­íðs innan flokks vilja nefni­lega eiga heið­ur­inn af öllum afrekum hans und­an­farin ár en drepa hann sjálf­an. Þeir vilja eiga gróð­ann af afl­anum en fleygja skip­stjór­anum sem veiddi fyrir borð.“

Skráður fjöl­mið­ill

For­ysta ehf. er skráð fjöl­miðla­fyr­ir­tæki hjá Fjöl­miðla­nefnd vegna rekst­urs frétta­vefs­ins Vegg­ur­inn.is. Sá mið­ill hóf að birta fréttir í nóv­em­ber í fyrra og hefur þá rit­stjórn­ar­stefnu „að miðla fréttum í þeim til­gangi að upp­lýsa og fræða.“ 

Rit­stjóri Veggs­ins er Viðar Garð­ars­son,  við­­skipta­fræð­ingur og mark­aðs­ráð­gjafi, og hann er einnig skráður ábyrgð­ar­maður For­ystu ehf. á heima­síðu fjöl­miðla­nefnd­ar. Eig­andi félags­ins er hins vegar Ólöf Sig­ur­geirs­dótt­ir, eig­in­kona Við­ars. Ekki kemur fram á síð­unum Íslandi­allt.is og Panama­skjol­in.is hverjir það eru sem setji efni inn á þær síður eða hver ábyrgð­ar­maður þeirra er.

Viðar komst í frétt­irnar í des­em­ber á síð­asta ári vegna ráð­gjafa­starfa sinna fyrir Norð­urál. Mikil átök stóðu þá yfir vegna end­ur­samn­inga­við­ræðna Lands­virkj­unar og fyr­ir­tæk­is­ins en orku­sölu­samn­ingur til álvers­ins í Grund­ar­tanga átti að renna út 2019. Lands­virkjun vildi hækka verð­ið, enda var gild­andi samn­ingur einn sá hag­stæð­asti fyrir orku­kaup­anda í stór­iðju sem gerður hefur verið hér­lend­is.

Ráð­gjafar Norð­ur­áls

17. des­em­ber boð­aði Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, til blaða­manna­fundar og kom þess­ari skoðun mjög skýrt á fram­færi. Í máli hans kom einnig fram að hann teldi Norð­­ur­ál, og eig­end­ur þess, vera að beita öllum mög­u­­legum með­­ulum til að halda verð­inu til sín sem lægstu.

Aðspurður um hvað það væru sem stjórn­­endur Norð­­ur­áls væri að ­gera sagði Hörður það vera ljóst, og full­kom­­lega eðli­­legt, að þeir færu víða í sam­­fé­lag­inu til að koma sjón­­­ar­miðum sínum á fram­­færi. Auk þess sagði Hörð­­ur: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki ­tengst orku­um­ræðu inn í umræð­una. Þeir hafa verið kynntir í við­­tölum sem ráð­gjafar Norð­­ur­áls.“

Þessi hópur sem Hörður talar um var leiddur af Viðar Garð­­ar­s­­syni, sem hafði blandað sér­ af miklu afli í umræður um orku­­mál vik­urnar á und­an. Viðar var meðal ann­ars á meðal þeirra sem héldu úti vett­vangnum „Auð­lind­­irnar okk­­ar“ á Face­book og skrif­aði pistla á mbl.is um orku­mál. Fjöl­mið­ill­inn Vegg­ur­inn sem hann rit­stýrir var þá einnig nýbyrj­aður göngu sína.  

Í skrifum Við­­ars og ann­­arra á þessum síðum var talað fyrir lægra orku­verði til stór­iðju, lengri orku­­sölu­­samn­ingum og gegn lagn­ingu sæstrengs til­ Bret­lands. Þá var Viðar til við­tals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun des­em­ber 2015. Í kynn­ingu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norð­­urál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álver­inu í Straum­s­vík hafi verið sett fram vegna þungs rekst­­urs, sem megi rekja til of hás orku­verðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None