Vigdís kannast ekki við að þingflokkurinn hafi sett Sigmund Davíð af

vigdis_15930209492_o.jpg
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki kann­ast við að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ákveðið að setja Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son af sem for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl síð­ast­lið­inn. Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sem tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far­ið, greindi frá því í við­tali við útvarps­þátt­inn Sprengisand fyrr í dag að þing­flokk­ur­inn hefði tekið slíka ákvörðun vegna trún­að­ar­brests í kjöl­far Wintris-­máls­ins. Vig­dís segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að henni hafi „sem betur fer haldið utan við þessa ógeðs­legu aðför - nú verður Sig­urður Ingi að stíga fram og upp­lýsa hvaða þing­menn sátu á svikráð um við for­mann flokks­ins - það var í það minnsta ekki allur þing­flokk­ur­inn“.

Á mbl.is er haft eftir Vig­dísi að hún hafi eig­in­lega ekki vitað hvað hafi verið um að vera á þing­flokks­fund­inum í apríl og að hana vanti enn mörg púslu­spil til að átta sig á því hvað hafi gerst þennan dag. Aug­ljós­lega hafi eitt­hvað átt sér stað bak­við tjöld­in. Þing­flokk­ur­inn hafi ekki verið búinn að ákveða neitt um afdrif Sig­mundar Dav­íðs sem for­sæt­is­ráð­herra, líkt og Sig­urður Ingi hefur haldið fram. „Þetta voru ein­hverj­ir aðilar í kring­um hann sem voru bún­­ir að ákveða að at­b­­urðar­ás­in yrði svona.“

Vig­­dís seg­ir að málið sé „súrt.“ Það sé fullt af „brigsl­um, svik­um og óheið­ar­leika. En ég meina, ef menn vilja ekki að flokk­­ur­inn verði hund­rað ára, þá er þetta besta leiðin til þess. Það er bara þannig. Og þá ber nú­ver­andi vara­­for­maður flokks­ins fulla ábyrgð á því.“

Auglýsing



Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, spyr Vig­dísi í ummæla­kerfi hennar hvort hún hafi ekki verið á fund­in­um. Á eigin síðu segir Silja Dögg að þegar Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins sem síðar varð for­sæt­is­ráð­herra, hafi mætt á þing­flokks­fund­inn sem hald­inn var 5. apr­íl, dag­inn sem Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, hafi þing­flokk­ur­inn verið búinn „að taka ákvörðun um að setja for­­sæt­is­ráð­herra af og leita á fund Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins um áfram­hald­andi sam­­starf en Sig­­urður fékk tæki­­færi til að setja Sig­­mund inn í þróun mála þegar síð­ar­­­nefndi kom til baka frá Bessa­­stöð­u­m.“

Sagði þing­flokk­inn hafa þegar sam­þykkt van­traust

Sig­urður Ingi var sem fyrr segir í við­tali í út­varps­­þætt­in­um Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. Þar sagði hann að þing­­flokkur Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins hafi verið búinn að taka ákvörðun um að setja Sig­­mund Davíð Gunn­laugs­­son af sem for­­sæt­is­ráð­herra á þing­­flokks­fundi 5. apríl síð­­ast­lið­inn, áður en að for­­mað­­ur­inn kom á fund­inn. Þing­­flokk­­ur­inn var búinn að taka ákvörðun um að biðja vara­­for­­mann Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, Sig­­urð Inga Jóhanns­­son, og þing­­flokks­­for­­mann­inn, Ásmund Einar Daða­­son, um að fara til Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins og biðja um áfram­hald­andi stjórn­­­ar­­sam­­starf, en setja for­­sæt­is­ráð­herr­ann af. 

Ástæðan var trún­­að­­ar­brestur milli þing­­flokks­ins og Sig­­mundar Dav­­íðs vegna Wintris-­­máls­ins og eft­ir­­mála þess. Sig­­mundur Davíð kom síðar til fund­­ar­ins en aðrir þing­­menn, en hann hafði m.a. farið til Bessa­­staða til að sækj­­ast eftir þing­rofs­heim­ild fyrr sama dag án sam­ráðs við þing­­flokk­inn. Þegar Sig­­mundur Davíð kom á fund­inn ræddi Sig­­urður Ingi, að eigin sögn, eins­­lega við hann og sagði honum frá stöð­unni og að for­­sæt­is­ráð­herr­ann væri búinn að missa stuðn­­ing þing­­flokks­ins. Síðan fóru þeir saman inn á fund þing­­flokks­ins og 10-15 mín­útum síðar lagði Sig­­mundur Davíð sjálfur fram sömu til­­lögu og þing­­flokk­­ur­inn hafði þegar sam­­þykkt áður en til atkvæða­greiðslu kæmi. Hún var sam­­þykkt. Opin­ber­­lega var greint frá mál­inu á þann veg að Sig­­mundur Davíð hefði sjálfur lagt fram til­­lögu um að stíga til hlið­­ar, en ekk­ert sagt frá því að þing­­flokk­­ur­inn hafi verið búinn að taka þá ákvörðun fyrir hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None