Starfsfólk Borgunar fær 900 þúsund króna bónus

Kredit kort Borgun
Auglýsing

Stjórn Borg­unar hefur ákveðið að allir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fá greidda launa­upp­bót, eða bón­us, sem nemur 900.000 kr á hvern starfs­mann.  Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­in­u. 

„Vill Borgun með þessu að starfs­menn njóti þess vaxtar og við­gangs sem orðið hefur á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins síð­ustu miss­eri, sem er ekki síst mik­illi og góðri vinnu starfs­fólks að þakka,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í henni segir enn­fremur að mikið álag hafi verið á starfs­mönnum Borg­unar um nokk­urt skeið, enda fyr­ir­tækið aukið veru­lega við­skipti sín á erlendum mörk­uðum síð­ustu mán­uði sem hefur skilað sér með marg­vís­legum hætti inn í rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. 

Auglýsing

Telur stjórn Borg­unar ánægju­legt að starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins njóti þess með áður­nefndri bón­us­greiðslu.

Stærsti eig­andi Borg­unar er Íslands­banki, með meira en 60 pró­sent hlut, en bank­inn er 100 pró­sent í eigu rík­is­ins.

Eins og kunn­ugt er hafa við­skipti með hluta­bréf í Borgun verið umdeild. Banka­ráð Lands­­bank­ans hefur ákveðið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014. Það er mat banka­ráðs að bank­inn hafi farið á mis við fjár­­muni í við­­skipt­unum þar sem bank­­anum voru ekki veittar nauð­­syn­­legar upp­­lýs­ing­­ar.Þetta kemur fram í til­­kynn­ingu frá Lands­­bank­ans.

Lands­­­banki Íslands, sem íslenska ríkið á, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í nóv­­em­ber 2014 þar sem fram kom að Stein­þór Páls­­­son banka­­­stjóri, hefði und­ir­­­ritað samn­ing um sölu á 31,2 pró­­­sent eign­­­ar­hlut í Borg­un. Kaup­verðið á hlutnum var tæp­­­lega 2,2 millj­­­arðar króna og var kaup­andi hlut­­­ar­ins Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag Borg­unar Slf. þar sem stjórn­­endur Borg­unar voru meðal hlut­hafa.

Ekk­ert for­m­­­legt sölu­­­ferli fór fram áður en félagið var selt, en Magnús Magn­ús­­­son, for­svar­s­­­maður félags­­­ins, var sá sem setti sig í sam­­­band við Lands­­­banka Íslands og sýndi áhuga á kaupum á hlut Lands­­­bank­ans. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None