Sigmundur: „Þetta voru ekki kínverskir ferðamenn sem ég mætti“

sigmundur david
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa tak­mark­aða mögu­leika á því að óska eftir því að fram fari rann­sókn á ásök­unum sem komið hafa upp um mis­ferli í tengslum við flokks­þing flokks­ins um helg­ina. Þó væri eðli­legt að málið yrði skoð­að. Hann seg­ist hafa orðið vitni að und­ir­för­li, hann­aðri atburða­r­ás, enda­lausum spuna og algjörum skorti á prinsippum í aðdrag­anda og á flokks­þing­inu sjálfu. 

Þetta var meðal þess sem kom fram í við­tali við hann í þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni fyrir skömmu. 

Sig­mundur Davíð hafn­aði því algjör­lega í við­tal­inu að hafa reynt að skipta sér nokkuð af dag­skrá flokks­þings­ins, líkt og aðrir hafa lýst. „Einu afskipti mín af dag­skrá voru að leggja til að það yrði sér­stakur tími fyrir ráð­herrana að tala, sem er óvenju­leg­t.“ Hann sagði jafn­framt að hann hefði ekki komið nálægt því að útsend­ingu af flokks­þing­inu hafi verið slitið eftir klukku­tíma langa ræðu hans á fyrri degi flokks­þings­ins. Því var ræða Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar ekki send út. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum sagði aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs, Jóhannes Þór Skúla­son, að um mis­tök hefði verið að ræða, en tækni­menn í Háskóla­bíó sögðu engin mis­tök hafa átt sér stað. Þeir hafi fengið fyr­ir­mæli um að rjúfa útsend­ing­una eftir ræðu Sig­mund­ar. 

Auglýsing

Þetta segir Sig­mundur að sé allt hluti af hann­aðri atburða­rás sem þarna hafi náð hámarki, og ein­hverjir aðrir hafi verið að reyna að gefa til kynna að hann og aðstoð­ar­maður hans hafi verið þarna að verki. Honum hafi verið sagt hverjir hafi staðið á bak við þessa hönn­uðu atburða­rás en hann hafi ekki getað sann­reynt það. 

Þá end­ur­tók Sig­mundur Davíð að það hafi mætt mik­ill fjöldi fólks á flokks­þingið á sunnu­dag­inn, fólk sem ekki hafði tekið þátt áður. Þetta fólk hafa komið í rút­um. Þegar honum var greint frá frétta­flutn­ingi þess efnis að einu rút­urnar sem hafi verið á staðnum hafi verið rútur með kín­verskum ferða­mönnum sagði hann: „Þetta var ekki hópur af kín­verskum ferða­mönnum sem ég mætti. Ég held að ég hefði alveg áttað mig á því.“ 

Sig­mundur Davíð lýsti svo yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og odd­vita flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur. Hann hvatti fólk til þess að mæta á kjör­stað til þess að greiða henni atkvæði. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að hún nái inn á þing,“ sagði Sig­mundur Dav­íð, og sagði Lilju vera eins og hann sjálf­ur, hafi aldrei ætlað sér í póli­tík. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None