Lilja skipaði aðstoðarmann sinn í stjórn Íslandsstofu

Lilja og Hrannar
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra skip­aði Hrannar Pét­urs­son, aðstoð­ar­mann sinn, í stjórn Íslands­stofu í síð­ustu viku. Hún seg­ist hafa litið þannig á málið að Hrannar væri besti mað­ur­inn sem til boða stæði í stöð­una. „Þegar ég fékk Hrannar í ráðu­neytið þá var það á fag­legum en ekki póli­tískum for­send­um. Hann er ekki flokks­bund­inn Fram­sókn­ar­maður og hefur engum skyldum að gegna gagn­vart flokkn­um.“ Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hlut­verk Íslands­stofu er meðal ann­ars að vera sam­ráðs­vett­vangur stjórn­valda og atvinnu­lífs­ins fyrir mark­aðs- og kynn­ing­ar­starf á erlendri grund. Greint var frá nýrri stjórn síð­ast­lið­inn fimmtu­dag sem á að sitja næstu þrjú árin og kom þá í ljós að Hrann­ar, sem bauð sig fram til for­seta Íslands í sumar en dró svo fram­boð sitt til baka, væri einn þeirra sem skip­aður hafði ver­ið. Utan­rík­is­ráð­herra skipar fjóra stjórn­ar­menn eftir til­nefn­ingu Sam­taka atvinnu­lífs­ins, einn eftir til­nefn­ingu iðn­að­ar­ráð­herra, einn eftir til­nefn­ingu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og einn án til­nefn­ing­ar. Því er ljóst að Hrannar er sá sem skip­aður var án til­nefn­ing­ar. Hrannar var ráð­inn aðstoð­­ar­­maður Lilju í byrjun maí 2016. Lilja segir ekki tíma­bært að ræða hvort Hrannar verði áfram aðstoð­ar­maður hennar ef hún sitji áfram í ráð­herra­stól eftir kosn­ing­ar.

Í Frétta­blað­inu segir Lilja að Hrannar hafi gíf­ur­lega reynslu á þessu sviði og því væri hann besti mað­ur­inn sem til boða stæði í stöð­una. Hrannar er fé­lags­fræð­ingur og var um tíma sjón­­varps­frétta­­maður fyrir tæpum tveimur ára­tugum en hefur síðan mest starfað við upp­­lýs­inga- og sam­­skipta­­mál, fyrst hjá ISAL sem á og rekur álverið í Straum­s­vík og síðar fjar­­skipta­­fyr­ir­tæk­inu Voda­­fone þar sem hann stýrði einnig mannauðs-, mark­aðs- og lög­­fræð­i­­mál­­um. Þá starf­aði hann sem verk­efn­is­­stjóri í for­­sæt­is­ráðu­­neyt­i Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar þar til í nóv­­em­ber 2015.

Auglýsing

Hrannar er ekki eini aðstoð­ar­maður ráð­herra sem situr í stjórn stofn­ana eða fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins. Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­son­ar, situr til að mynda í stjórn Íslands­pósts, og Matth­ías Ims­land, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur og áður Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­son­ar, situr í stjórn Isa­via. Þá situr Sunna Gunn­ars Mart­eins­dótt­ir, aðstoð­ar­maður Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í stjórn Matís ohf. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None