Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­­mál, sem leiða að sér losun á fjár­­­magns­höftum sem hafa verið við lýði á Íslandi frá því í nóv­­em­ber 2008, taka gildi í dag, 21. októ­ber, að hluta til. Fleiri breyt­ing­ar, sem losa enn frekar um fjár­magns­höft­in, munu síðan taka gildi 1. jan­úar næst­kom­andi. Fjár­magns­höft hafa verið við lýði á Íslandi frá því í nóv­em­ber 2008. Um er að ræða langstærsta skref Íslands út úr því haftaum­hverfi sem slegið var utan um efna­hag lands­ins sem stigið hefur verið frá hruni. Rík­­is­­stjórnin hafði lagt mikla áherslu á að málið yrði sam­­þykkt fyrir kosn­­ing­­ar. Íslend­ingar hafa búið við þær tak­­­mark­­­anir á fjár­­­­­magns­hreyf­­­ingum sem fylgja höftum í tæp átta ár. 

Á meðal þeirra breyt­inga sem taka gildi strax eru að bein erlend fjár­fest­ing verður ótak­mörkuð en háð stað­fest­ingu Seðla­banka Íslands, fjár­festa má í erlendum fjár­mála­gern­ingum upp að 30 millj­ónum króna að ákveðnum skil­yrðum upp­fyllt­um, ein­stak­lingar mega kaupa eina fast­eign erlendis á ári, heim­ild til kaupa á erlendum gjald­eyri vegna ferða­laga verður hækkuð úr 350 þús­und í 700 þús­und, skila­skylda erlends gjald­eyris vegna lán­töku ein­stak­linga hjá erlendum aðilum til kaupa á fast­eign, far­ar­tæki eða vegna fjár­fest­inga erlendis er afnumin og ýmsar sér­tækar tak­mark­anir eru afnumdar eða rýmkað­ar.

Þá eru heim­ildir Seðla­banka Íslands til upp­lýs­inga­öfl­unar á grund­velli hlut­verka hans sem seðla­banka eru rýmkaðar í „því skyni hann geti aflað upp­lýs­inga sem auð­velda bank­anum að stuðla að verð­lags- og fjár­mála­stöð­ug­leika eftir að fjár­magns­höft hafa verið los­uð.“

Auglýsing

Í byrjun næsta árs verður fjár­­­hæð­­­ar­­­mörk til fjár­­­­­fest­inga í erlendum fjár­­­­­mála­­­gern­ingum hækkuð og inn­­­­­stæð­u­­­flutn­ingur heim­il­að­­­ur. Það þýðir að hægt verður að leggja inn á banka­­­reikn­inga á milli landa að nýju án þess flækju­­­stigs sem nú er á slíkri aðgerð. Auk þess stendur til að rýmka heim­ildir ein­stak­l­inga til að kaupa gjald­eyri veru­­­lega. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None