Benedikt verði forsætisráðherra í breiðri stjórn

Benedikt Jóhannesson
Auglýsing

For­menn hins nýlega mynd­aða miðju­banda­lags frjáslyndu flokk­anna Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fund­uðu með Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manni Vinstri grænna, á mið­viku­dag og þá var viðruð sú hug­mynd að allir flokk­arnir þrír myndu mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. For­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn yrði Bene­dikt Jóhann­es­son. Þessi fundur fór fram sama dag og Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var afhent stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af for­seta Íslands. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Þar segir einnig að Bene­dikt hafi fal­ast eftir stuðn­ingi Pírata til að fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð áður en það var afhent Bjarna. Þeir urðu ekki við þeirri beiðni. Ein­ungis tveir for­menn töldu að Bene­dikt ætti að fá það, Við­reisn og Björt fram­tíð. Ákvörðun Ótt­arrs Proppé að mæla með Bene­dikt, og ganga síðar í sam­starf við Við­reisn við myndun rík­is­stjórn­ar, hefur ekki mælst vel fyrir hjá hinum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­un­um. Björt fram­tíð hafði myndað óform­legt banda­lag með þeim fyrir kosn­ingar og búist hafði verið við að það myndi halda og að reynt yrði að mynda stjórn frá miðju til vinstri. Svo er ekki og nú standa yfir við­ræður milli Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hins vegar um að mynda nýja stjórn. Helst er vilji til þess að slík stjórn verði styrkt með einum flokki til við­bótar og hafa Sjálf­stæð­is­menn þrýst á að Fram­sókn verði hleypt að. Það hafa viðsemjendur flokks­ins úti­lok­að. Báðir aðilar gætu sætt sig við Vinstri græna ef saman næð­ist um mál­efni en ljóst er að innan her­búða þess flokks er lít­ill sem eng­inn vilji til að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn, að minnsta kosti ekki fyrr en reynt hefur verið á myndun ann­ars konar rík­is­stjórn­ar.

DV greinir frá því í dag að í könnun sem Gallup gerði rétt fyrir kosn­ingar hafi komið í ljós að tæp 40 pró­sent stuðn­ings­manna Bjartrar fram­tíðar hafi viljað að Katrín Jak­obs­dóttir yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Það er nán­ast sama hlut­fall þeirra og vildi að for­maður flokks­ins, Ótt­arr Proppé, sæti á þeim stóli. Stuðn­ings­menn Bjartrar fram­tíðar höfðu lít­inn sem engan áhuga á að Bene­dikt Jóhann­es­son yrði for­sæt­is­ráð­herra og enn minni á því að Bjarni Bene­dikts­son tæki við emb­ætt­inu. Í umræddri könnun kom fram að 40 pró­sent allra aðspurðra, sama hvaða flokk þeir studdu, vildu að Katrín yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son var með 26 pró­sent stuðn­ing í emb­ættið en Bene­dikt með ein­ungis fjögur pró­sent. 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None