Stjórnvöld á lokametrum að ganga frá ólögmætri ríkisaðstoð

Íslensk stjórnvöld eru á lokametrunum að ganga frá samningum um endurheimt á ólöglegum ríkisstyrkjum. Þau hafa þó enn ekki upplýst eftirlitsstofnun EFTA um stöðu mála.

eftacourt-1.jpg
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd segja enn að verið sé að leggja loka­hönd á frá­gang á end­ur­heimtum á ólög­mætri rík­is­að­stoð, sem ríkið var dæmt fyrir að hafa ekki end­ur­heimt fyrir EFTA dóm­stólnum í sum­ar. 

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, stefndi Íslandi fyrir dóm­stólnum vegna þess að ekki hafði verið brugð­ist við ákvörðun eft­ir­lits­stofn­un­ar­inn­ar, sem úrskurð­aði fyrir meira en tveimur árum síðan að íslenska ríkið hefði gert fimm ólög­lega fjár­fest­inga­samn­inga sem bæri að ógilda og end­ur­heimta þá aðstoð sem veitt hafði ver­ið. 

Kjarn­inn greindi frá því fyrir hálfum mán­uði að ESA hefði ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá íslenskum stjórn­völdum um það hvort þau væru farin að end­ur­heimta þessa ólög­legu rík­is­að­stoð. Kjarn­inn sendi einnig fyr­ir­spurn á atvinnu­vega­ráðu­neytið til að spyrj­ast fyrir um stöðu mála. Í svar­inu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, sem barst fyrir helgi, kemur fram að verið sé að leggja loka­hönd á frá­gang eins máls­ins, en búið sé að ganga frá öllum öðrum samn­ing­um. 

Auglýsing

Fjár­fest­inga­samn­ing­unum var í þremur til­vikum rift, þar af tveimuar þar sem verk­efnin fóru aldrei af stað og því voru engir rík­is­styrkir veittir á end­an­um. Þetta voru samn­ingar vegna kís­il­vers Thors­ils í Þor­láks­höfn, sem fór aldrei af stað, og kís­il­vers Íslenska kís­il­fé­lags­ins í Helgu­vík, sem fór heldur aldrei af stað. Fjár­fest­inga­samn­ingi við Verne Global vegna gagna­vers fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið rift og búið er að krefja fyr­ir­tækið um end­ur­greiðslu á rík­is­að­stoð í sam­ræmi við ákvörðun ESA. Samn­ingum við Becromal vegna álþynnu­verk­smiðju hefur verið breytt, allar íviln­anir hafa verið felldar út og búið er að krefja fyr­ir­tækið um end­ur­greiðslu. Eina málið sem stendur út af er vegna stá­lend­ur­vinnslu GMR, þar sem búið er að krefj­ast end­ur­greiðslu en verið er að leggja loka­hönd á frá­gang máls­ins, sam­kvæmt atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið segir ekki hvort fyr­ir­tækin séu búin að borga eitt­hvað til bak­a. 

Þetta er nán­ast alveg sama staða og var uppi í sumar þegar dómur EFTA dóm­stóls­ins féll. Þá sagði atvinnu­vega­ráðu­neytið að búið væri að ná sam­komu­lagi í öllum málum nema GMR end­ur­vinnslu, og það mál væri á loka­stig­um. 

Kjarn­inn spurði ESA á nýjan leik í dag hvort búið væri að upp­lýsa stofn­un­ina um þetta, en í svari stofn­un­ar­innar kemur fram að hún hafi enn ekk­ert heyrt frá íslenskum stjórn­völdum um stöðu mála. 

Við­var­andi vanda­mál 

Íslensk stjórn­­völd vissu allan tím­ann að þau hefðu gerst brot­­leg með íviln­un­­ar­­samn­ing­unum en sinntu því ekki að end­­ur­heimta aðstoð­ina, að því er fram kom í dómi EFTA dóm­stóls­ins. Stjórn­­­völd hafi ekki lagt fram neinar sann­­­anir fyrir því fyrir dómi að samn­ing­­­arnir hafi verið ógildir eða að greiðslum til fyr­ir­tækj­anna hafi verið hætt. Þá hafi Ísland ekki sýnt fram á nákvæmar upp­­­hæðir sem ætti að end­­­ur­heimta né heldur hvernig stæði til að standa að end­­­ur­heimt­un­­­um. 

Í við­tali við Kjarn­ann í ágúst sagði Gjer­­mund Mathies­en, yfir­­­maður sam­keppn­is­­mála hjá ESA að endur­heimtur á ólög­­mætri rík­­is­að­­stoð væru orðnar að við­var­andi vanda­­máli á Íslandi og stofn­unin hefði áhyggjur af stöðu mála hér­­­lend­­is. 

Íslensk stjórn­­­völd héldu því fram fyrir dómi að upp­­­hæð­­­irnar sem um ræðir séu mjög litl­­­ar. Mathiesen segir að upp­­­hæð­­­irnar hafi vissu­­­lega ekki verið mjög háar, en það veki einmitt upp áhyggjur af því hvað myndi ger­­­ast í stærri mál­­­um. „Myndi þá taka ennþá lengri tíma að end­­­ur­heimta rík­­­is­að­­­stoð­ina? Það er það sem við höfum miklar áhyggjur af.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None