Rússar koma líklega í veg fyrir hækkun olíuverðsins

Samkomulag um framleiðsluþak á olíu er í uppnámi. Fundur OPEC-ríkjanna er áætlaður á miðvikudag. Markmiðið er að hækka olíuverð með því að draga úr framboði.

Sádi-arabar eru áhrifamesta ríkið í OPEC. Þar eru ráðamenn farnir efast um að samkomulagið verði að veruleika. Hér má sjá orkumálaráðherra landsins Khaled al-Faleh í símanum á óformlegum fundi OPEC-ríkjanna 28. september.
Sádi-arabar eru áhrifamesta ríkið í OPEC. Þar eru ráðamenn farnir efast um að samkomulagið verði að veruleika. Hér má sjá orkumálaráðherra landsins Khaled al-Faleh í símanum á óformlegum fundi OPEC-ríkjanna 28. september.
Auglýsing

Rússar munu að öllum lík­indum koma í veg fyrir að OPEC-­ríkin sam­þykki minni olíu­fram­leiðslu á mið­viku­dag. Sam­tök olíu­út­flutn­ings­landa reyna nú að bjarga sam­komu­lag­inu sem gert var í sept­em­ber um að tak­marka fram­leiðslu olíu í heim­inum til þess að hækka olíu­verð á ný.

Olíu­verð er helm­ingi lægra í dag en það var um mitt ár 2014 og þess vegna telja OPEC-­ríkin mik­il­vægt að setja þak á olíu­fram­leiðslu í heim­in­um. Nú verða til að jafn­aði 33.64 millj­ónir tunna af olíu á dag í OPEC-­ríkj­unum en olíu­ríkin vilja tak­marka fram­boðið við 32,5 til 33,0 millj­ónir tunna á dag. Ljóst er að Rúss­land og önnur olíu­fram­leiðslu­ríki þurfa að taka þátt í aðgerð­unum svo þær skili til­ætl­uðum árangri, sam­kvæmt frétt Reuters.

Fundur ráð­herra aðild­ar­ríkja OPEC 30. nóv­em­ber átti að ganga frá sam­komu­lag­inu um fram­leiðslu­skerð­ingu en und­an­farna daga hefur komið í ljós að ágrein­ingur um sam­komu­lagið kann að vera of mik­ill, ekki aðeins utan OPEC heldur einnig innan sam­tak­anna.

Auglýsing

Áhrifa­­­mesta ríkið innan OPEC er Sá­d­i-­­­ar­a­b­ía, en til sam­tak­anna til­­­heyra fjórtán olíu­­­fram­­­leiðslu­­­rík­­i. Auk Sádi-­ar­a­bíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­­­dæm­in, og Venes­ú­ela. ­Saman standa ríkin undir meira en 33 pró­­­sent af heims­fram­­­leiðsl­unni. Olíu­­­fram­­­leiðslu­­­rík­i eins og Brasil­ía, Banda­­­rík­­­in, Rús­s­land og Nor­egur standa utan OPEC.

Óvissan um hvort sam­komu­lagið muni verða að veru­leika varð til þess að verð á hrá­olíu (Brent) lækk­aði um tvö pró­sent í morg­un. og stendur í um 47 doll­urum á tunn­una. Reuters hefur eftir grein­endum bank­anna Morgan Stanley og Macqu­arie að lík­lega muni olíu­mark­að­ur­inn leið­rétta sig snar­lega ef OPEC-­ríkj­unum mis­tekst að kom­ast að sam­komu­lagi og tunnu­verðið fari jafn­vel niður fyrir 35 doll­ara.

Und­an­farin ár hefur olíu­fram­leiðsla í heim­inum auk­ist mik­ið. Eft­ir­spurnin árið 2016 er að jafn­aði 94,40 milljón tunnur á dag, sam­kvæmt mán­að­ar­legri skýrslu OPEC sem kom síð­ast út í októ­ber. Talið er að eft­ir­spurnin muni vaxa um 1,22% á milli ára og verða 95,56 milljón tunnur á dag að jafn­aði árið 2017.

Fram­boðið meðal þeirra ríkja sem ekki eru í OPEC hefur minnkað á árinu 2016 um 1,19%. Stærsta ein­staka olíu­fram­leiðslu­ríki í heimi utan OPEC er Banda­ríkin sem sendir nú að jafn­aði 13,62 milljón tunnur af olíu á markað á dag. Á und­an­förnum fimm árum hafa Banda­ríkin tvö­faldað fram­leiðslu sína og fram­leiða nú álíka mikið og árið 1985. Rússar koma þar á eftir en þar eru fram­leiddar að jafn­aði 11,04 milljón tunnur á dag.

Offramboð hefur verið á olíu í heiminum undanfarin ár og er það ein ástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu er lágt.

Óvenju­legur fundur

Fundur OPEC, ef af honum verð­ur, er um marg­t ó­venju­­leg­­ur, þar sem ríkin hafa í reynd með sér sam­ráð á risa­vöxnum mark­aði með­ ol­­íu, sem síðan hefur mikil og djúp afleidd áhrif á gang efna­hags­­mála í heim­in­­um.

Heims­­mark­aðs­verð á olíu hefur sveifl­­ast á bil­inu 47 til 50 Banda­­ríkja­dal­ir á tunnu síð­­ast­liðna sex mán­uði eftir að það hækk­­aði um ríf­­lega helm­ing frá því að það náði lág­­marki í jan­úar síð­­ast­liðn­­­um. Þá var það komið í 26 ­Banda­­ríkja­dali, eftir að hafa verið rúm­­lega ári fyrr í 110 Banda­­ríkja­döl­u­m. Und­an­farin tvö ár á olíu­­­mark­aði hafa því verið mikil rús­sí­­ban­­areið fyr­ir­ ol­­íu­fram­­leiðslu­­ríki. Mörg þeirra, einkum þau sem voru með veika inn­­viði fyr­ir, hafa farið illa út úr verð­­fall­inu, og má sér­stak­lega benda á Bras­­ilíu og Venes­ú­ela í þeim efn­­um.

Þetta mikla verð­­fall á olíu hefur hins vegar komið sér vel fyr­ir­ ­mörg önnur ríki eins og Ísland. Dregið hefur úr verð­bólgu­þrýst­ingi erlend­is frá, sökkum þessa, og þá hafa útgerð­­ar­fyr­ir­tæki og flug­­­fé­lög notið góðs af því að stór kostn­að­­ar­liður í rekstr­in­um, olíu­­­kaup, hefur orðið hag­­stæð­­ari.

Í nýj­­ustu Pen­inga­­málum Seðla­­banka Íslands er fund­­ur­inn gerður að um­tals­efni. „OPEC-­­ríkin funda á ný í þessum mán­uði en mikil óvissa er um ­nið­­ur­­stöðu þess fundar og áhrif hennar á heims­mark­aðs­verð á olíu. Horfur eru á hærra verði en í ágúst og því búist við minni lækkun á þessu ári en þá var ­á­ætlað og meiri hækk­­unum á næstu árum,“ segir í Pen­inga­­mál­­um.

Tunnan af hrá­olíu á Banda­­ríkja­­mark­aði kostar nú 45 Banda­ríkja­dali og hefur lækkað lít­il­­lega í verði und­an­farna daga.

Fylgj­­ast má með þróun bens­ín­verðs á Íslandi á bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None