Charlie Hebdo: Merkel góð í fjögur ár með nýju pústi

Þjóðverjar fá nú kalda matið frá franska skopritinu Charlie Hebdo. Á þýsku.

Útgáfa eftirlifenda árásanna á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo seldist í meira en 70.000 eintökum í Þýskalandi. Nú kemur Charlie Hebdo í fyrsta sinn út á þýsku.
Útgáfa eftirlifenda árásanna á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo seldist í meira en 70.000 eintökum í Þýskalandi. Nú kemur Charlie Hebdo í fyrsta sinn út á þýsku.
Auglýsing

Fyrsta þýska útgáfa Charlie Hebdo hæð­ist að Ang­elu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, og sýnir hana bæði sitj­andi á kló­sett­inu og á bíla­lyftu þýska bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen. Franska skopteikn­inga­daglaðið Charlie Hebdo kom út í þýskri útgáfu í fyrsta sinn í morgun og er það jafn­framt fyrsta útgáfa blaðs­ins á öðru tungu­máli en frönsku.

Á for­síðu þýsku útgáf­unnar er Merkel sýnd liggja á bíla­lyftu bif­reiða­fram­leið­and­ans Volkswagen undir fyr­ir­sögn­inni „VW stendur með Merkel“. Bif­véla­virki fyr­ir­tæk­is­ins heldur á púströri og segir „Með nýju pústi verður hún fær í fjögur ár í við­bót“. Er það vísun í útblást­urs­svindl Volkswagen og erf­iða póli­tíska stöðu Merkel og flokks henn­ar, Kristi­legra demókrata, í Þýska­landi.

Auglýsing

Fyrsta útgáfa Charlie Hebdo í Þýska­landi var prentuð í 200.000 ein­tökum og spannar 16 síð­ur. Blaðið varð heims­þekkt eftir að hryðju­verka­menn gerðu árás á rit­stjórn­ar­skrif­stofur blaðs­ins í París í jan­úar 2015 þar sem tólf manns voru myrt­ir. Charlie Hebdo er nú fram­leitt á leyni­stað í Frakk­landi, í bæði franskri og þýskri útgáfu. Rit­stjóri þýsku útgáf­unnar er 33 ára kona frá Berlín. Hún hefur farið að ráði kollega sinna og gengur undir dul­nefn­inu Minka Schneider.

„Charlie Hebdo frelsar“. Merkel á klósettinu les Charlie Hebdo.

Aðal­teikn­ari þess­arar fyrstu útgáfu er Laurent Souris­seau sem gengur undir lista­manns­nafn­inu Riss. Hann varpar raun­særri mynd af fólki sem hann hefur kynnst á ferðum sínum eftir árás­irn­ar, ferða­manna­straumnum til Evr­ópu og öðrum sam­fé­lags­mál­um.

Riss særð­ist alvar­lega í árásum hryðju­verka­mann­anna í Par­ís. Hann sagði í sam­tali við ARD að húmor væri alls stað­ar, meira að segja í Þýska­landi. „Þetta er til­raun hjá okkur að gefa Charlie Hebdo út á öðru tungu­máli og reyna að hafa uppi á nýjum aðdá­endum tíma­rits­ins sem geta hjálpað okkur að vernda það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None