Birgitta fær umboð til stjórnarmyndunar

Píratar bættu miklu við sig í alþingiskosningunum 29. október.
Píratar bættu miklu við sig í alþingiskosningunum 29. október.
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, full­trúi Pírata á Alþingi, hefur fengið umboð for­seta Íslands til þess að mynda rík­is­stjórn. Hún mætti ein til fundar við Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, að beiðni for­set­ans en hingað til hafa þrír full­trúar Pírata setið fundi fyrir Pírata. Guðni kynnti fjöl­miðlum þetta í Bessa­staða­stofu rétt í þessu.

Tveir stjórn­mála­leið­togar hafa áður fengið þetta umboð eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber, þau Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna.

Birgitta mætti á fund Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum klukkan 16:00. Guðni hefur í dag rætt við alla full­trúa stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi eftir kosn­ing­arn­ar. Flestir voru sam­mála um að ekki hefði verið reynt til þrautar að mynda rík­is­stjórn, hvort sem er til hægri eða vinstri.

Auglýsing

Guðni seg­ist hafa beðið með að veita stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á ný eftir að upp úr slitn­aði í við­ræðum Bjarna og Katrín­ar. For­mönnum flokk­anna var þá frjálst að ræða sín á milli. Þá kom í ljós að enn væri vilji til þess að ræða stjórn­ar­myndun Pírata, Við­reisn­ar, Bjartar fram­tíð­ar, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Guðni óskaði eftir því að Birgitta myndi upp­lýsa sig um gang mála strax eftir helgi.

Katrín Jak­obs­dóttir telur að nú ætti að gera hlé á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, tók undir það. Bæði sögð­ust þau vera orðin þreytt og vildu leyfa „ryk­inu að setj­ast“ eins og Bene­dikt komst að orði. Katrín hefur einnig viðrað hug­myndir um að mynduð verði þjóð­stjórn allra flokka og boðað til kosn­inga á ný.

Birgitta og Píratar hafa átt þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Upp úr þeim við­ræðum slitn­aði, jafn­vel þó margir hafi verið þeirrar skoð­unar að ekki hafi verið full­reynt að sætta ólík sjón­ar­mið innan þessa hóps.

Píratar fengu 14,5 pró­sent atkvæða á lands­vísu í alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Aðeins Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn fengu fleri atkvæði, jafn­vel þó fjöldi þing­manna Pírata sé sá sami og Vinstri græn.

Vill ræða saman við hring­borð

Birgitta sagði eftir fund sinn með for­set­anum að ­mik­il­vægt sé að hægt verði að þjóð­ar­sátt­ar­tón því framundan séu mjög erfið mál sem muni koma til kasta stjórn­mála­manna að leysa. Hún segir að ef hægt verði að ná þessum flokkum sem eru lengst til vinstri og lengst til hægri að þá séum við komin með „litla þjóð­stjórn“. Hún segir einnig að Pírtar muni ekki vilja stjórna við­ræðum við borð­senda, heldur ræða saman við hring­borð. Það sé í anda þeirra stjórn­ar­hátta sem Píratar til­einka sér.

Birgitta ætlar nú að hitta þing­flokk Pírata og mun halda áfram sam­tölum við for­ystu­menn flokka á Alþingi. Hún segir að Píratar geri ekki til­kall til for­sætis í rík­is­stjórn. Heldur sé mik­il­vægt að sætta ágrein­ings­mál áður en rætt sé um stóla.

Fréttin var upp­færð með ummælum Birgittu eftir fund­inn með for­seta klukkan 16:35.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None