Píratar gera ekki tilkall til forsætisráðuneytisins

Birgitta Jónsdóttir ræddi við fjölmiðla eftir fund sinn með forseta Íslands.
Birgitta Jónsdóttir ræddi við fjölmiðla eftir fund sinn með forseta Íslands.
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata á Alþingi, segir Pírata ekki gera til­kall til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins jafn­vel þó flokk­ur­inn hafi nú form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð úr vasa Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta Íslands. Birgitta lýsti mark­miðum sínum fyrir fjöl­miðlum eftir stuttan fund með Guðna á Bessa­stöðum síð­degis í dag.

Lík­legt er að nú hefj­ist við­ræður Pírata, Við­reisn­ar, Bjartar fram­tíðar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna á ný en upp úr þeim við­ræðum slitn­aði þegar Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, hafði umboð til stjórn­ar­mynd­un­ar. Þá þótti Við­reisn það vera óyf­ir­stíg­an­legt verk­efni að sætta ólík sjón­ar­mið milli þess­ara fimm flokka.

Birgitta sagði að Katrín og Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, hefðu hist í dag og þess mætti vænta að hægt væri að koma þessum flokkum að samn­inga­borð­inu á ný. Katrín hefur áður opin­berað efa­semdir sínar um að þessir fimm flokkar geti unnið sam­an, eftir að upp úr við­ræð­unum undir hennar for­ystu slitn­aði, og spurt hvað hafi breyst í afstöðu Við­reisn­ar.

Auglýsing

Jafn­vel þó Birgitta hafi mætt ein til Bessa­staða þá segir hún að þrír full­trúar Pírata hafi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­ið; það eru hún, Smári McCarty og Einar Aðal­steinn Brynj­ólfs­son. Guðni hafi óskað eftir því að hún kæmi ein til fundar við sig.

Þing­flokkur Pírata kemur nú saman og mun halda áfram sam­­tölum við for­yst­u­­menn flokka á Alþingi. Birgitta segir að Píratar geri ekki til­­­kall til for­­sætis í rík­­is­­stjórn. Heldur sé mik­il­vægt að sætta ágrein­ings­­mál áður en rætt sé um stóla. Það sé skoðun hennar að sá verði for­sæt­is­ráð­herra sem helst sé lík­legur til þess að geta sætt ólík sjón­ar­mið.

Birgitta sagði eftir fund sinn með for­­set­­anum að ­mik­il­vægt sé að hægt verði að þjóð­­ar­sátt­­ar­tón því fram undan séu mjög erfið mál sem muni koma til kasta stjórn­­­mála­­manna að leysa. Hún segir að ef hægt verði að ná þessum flokkum sem eru lengst til vinstri og lengst til hægri að þá séum við komin með „litla þjóð­­stjórn“. Hún segir einnig að Píratar muni ekki vilja stjórna við­ræðum við borð­­senda, heldur ræða saman við hring­­borð. Það sé í anda þeirra stjórn­­­ar­hátta sem Píratar til­­einka sér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None