Fyrsti formlegi fundurinn á mánudag – Fyrsti þingfundur kjörtímabilsins á þriðjudag

Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarty og Einar Brynjólfsson eru forsvarsmenn Pírata í stjórnarmyndunarferlinu.
Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarty og Einar Brynjólfsson eru forsvarsmenn Pírata í stjórnarmyndunarferlinu.
Auglýsing

Flokk­arnir fimm sem Píratar hyggj­ast leiða í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður ætla ekki að hitt­ast form­lega á fundi fyrr en á mánu­dag. Birgitta Jóns­dóttir tók við stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði frá Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta á Bessa­stöðum í gær fyrir hönd Pírata. Skiptar skoð­anir eru um hvort þetta hafi verið rétta leiðin en Birgitta hygg­ist skila umboð­inu strax ef við­ræður flokk­ana fimm skila ekki árangri.

For­menn þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber gengu allir á fund Guðna á skrif­stofu for­seta­emb­ætt­is­ins við Sól­eyj­ar­götu í gær. Ein­hverjir höfðu orð á því að rétt­ast væri að hvíla frek­ari við­ræð­ur, enda stans­lausar við­ræður í allar áttir búnar að standa yfir í rúman mán­uð.

Píratar vilja taka upp þrá­inn á ný í fimm flokka við­ræðum sem fóru út um þúfur undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna. Þeir flokkar höfðu all­ir, nema Vinstri græn, rætt saman aftur í vik­unni sem leið, eftir að Katrín skil­aði umboði sínu til stjórn­ar­mynd­un­ar. Meðal Vinstri grænna eru efa­semd­araddir um þetta sam­starf, enda hefur áður slitnað upp úr þessum við­ræð­um.

Auglýsing

Katrín seg­ist ekki átta sig á því hvaða for­sendur hafi breyst síð­an. Haft er eftir henni í Frétta­blað­inu í dag að flokkur hennar ætli að nálg­ast við­ræð­urnar af opnum hug.

Birgitta segir að búið sé að reyna til þrautar önnur stjórn­ar­mynd­un­ar­form. „Ég held að það sem hafi aðal­lega breyst frá því að við reyndum síð­ast sé að fólk hefur haft rými til að fara dýpra ofan í þessi mál­efni sem fólk hefur upp­lifað óbrú­an­leg,“ sagði Birgitta í gær. Hún sér stjórn­mála­flokk­ana á miðj­unni fyrir sér sem brýr milli hægri- og vinstri­vængja á Alþingi.

For­ystu­fólk í Við­reisn seg­ist heldur hafa viljað að for­set­inn byggi til and­rými yfir helg­ina. Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, seg­ist hafa lagt það til við Guðna. „For­set­inn hefur hins vegar ákveðið að gera þetta öðru­vísi og ég virði ákvörðun hans,“ er haft eftir honum í Frétta­blað­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Við­reisnar og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, segir það hafa verið óþarfa hjá for­set­anum að veita stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð fyrir helgi. Í þætt­inum Vik­unni í stjórn Gísla Mart­eins Bald­urs­sonar á RÚV í gær­kvöldi sagði Þor­gerður að allir væru að tala sam­an. „Að láta ein­hvern fá umboð, ég held að það skipti ekki öllu máli. Ég held að það sé óþarfi núna fyrir þessa helgi. Það er ljóst að menn hafa verið að tala saman á síð­ustu dög­um, síð­ustu vik­um. Það er allt að þróast,“ sagði hún.

„Ég held að þessi langi aðlög­un­ar­tími, pör­un­ar­tími fram að nýrri rík­is­stjórn, sé bara ágætur fyrir þing­ið. Fólk er að kynn­ast. Fólk er að þreifa á hverju öðru mál­efna­lega séð. Ég held að sama hver á end­anum verður í rík­is­stjórn muni þessi tími nýt­ast þing­inu og von­andi vinnu­brögð­unum til lang­frama.“

Þing­setn­ing á þriðju­dag

Alþingi kemur saman í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber á þriðju­dag á þing­setn­ingu í Alþing­is­hús­inu og í Dóm­kirkj­unni. Þingið hefur verið kallað saman til þess að hægt verði að afgreiða fjár­lög næsta árs. Morg­un­blaðið í dag hefur eftir Guð­mundi Árna­syni, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, að frum­varpið hafi farið í prentun í gær. Það verði svipað að umfangi og und­an­farin ár.

Þingið mun starfa eins og venju­lega, jafn­vel þó flokk­arnir hafi ekki komið sér saman um hver skuli sitja í rík­is­stjórn á þessu kjör­tíma­bili. Þangað til situr rík­is­stjórn Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar sem starfs­stjórn, ef Alþingi sam­þykkir ekki van­traust á þá rík­is­stjórn. „Það er allt undir „control“,“ sagði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í sjón­varps­við­tali í gær.

Þing­for­seti á þessu „stjórn­lausa“ þingi verður Stein­grímur J. Sig­fús­son, odd­viti Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en sam­kvæmt þing­skap­a­lögum skal sá vera þing­for­seti sem hefur lengsta þing­reynslu. Stein­grímur hefur lang mesta þing­reynslu allra þeirra sem setj­ast á þing eftir kosn­ing­arn­ar; hann sett­ist fyrst á þing árið 1983.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None