Fyrrverandi ráðherra var ráðin í starf sérfræðings

siv fridleifsdottir
Auglýsing

Siv Frið­leifs­dótt­ir, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, var ráðin í starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu í félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í vor. Ráðn­ingin tók gildi 1. apríl síð­ast­lið­inn og starfið var aug­lýst. Alls sóttu 36 um það. Sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið var það skrif­stofu­stjóri félags­þjón­ustu sem tók ákvörðun um ráðn­ing­una í sam­ráði við ráðu­neyt­is­stjóra.

Siv var fengin til að starfa sem ráð­gjafi fyrir félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið á árinu 2014. Um var að ræða aðstoð vegna nor­ræns sam­starfs, for­mennsku í nor­rænu ráð­herra­nefnd­inni og vinnu í vel­ferð­ar­vakt­inni sem stofnuð var að frum­kvæði stjórn­valda snemma árs 2009 til að fylgj­ast með afleið­ingum efna­hags­hruns­ins á heim­ilin í land­inu. Alls fékk Siv greiddar 19.670.014 krónur frá upp­hafi árs 2014 og fram í des­em­ber 2015 fyrir ráð­gjafa­störf sín. Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra er Eygló Harð­ar­dótt­ir.

Gerð krafa um víð­tæka þekk­ingu á nor­rænu sam­starfi

Starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu var aug­lýst í febr­úar síð­ast­liðn­um. Í aug­lýs­ing­unni var kraf­ist háskóla­prófs eða sam­bæri­legrar mennt­unar á sviði félags­mála. Þá sagði einnig í aug­lýs­ing­unni að mik­il­vægt væri „að við­kom­andi sér­fræð­ingur hafi víð­tæka þekk­ingu og reynslu af opin­berri stjórn­sýslu og sam­starfi þvert á ráðu­neyti. Enn fremur er æski­legt að hann hafi sér­þekk­ingu á þeim mála­flokkum sem heyra undir skrif­stofu félags­þjón­ustu. Þá er einnig gerð krafa um víð­tæka þekk­ingu og reynslu af alþjóð­legum sam­skipt­um, ekki síst nor­rænu sam­starfi innan stjórn­sýsl­unn­ar.“

Auglýsing

Siv er með BS-­próf í sjúkra­þjálf­un. Hún sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn frá 1995 til 2013 og var tví­vegis ráð­herra. Siv var umhverf­is­ráð­herra og sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 1999 til 2004 og heil­brigð­is- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2006 til 2007.

Aug­lýs­ingin um starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu vakti athygli tveggja háskóla­mennt­aðra kvenna sökum þess að í henni væri starfs­reynsla gerð að veiga­meiri skil­yrði en mennt­un. Þær skrif­uðu grein sem birt­ist á Vísi.is um málið í febr­úar þar sem þær fjöll­uðu um þau hæf­is­skil­yrði sem sett voru í aug­lýs­ing­unni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None