Malbikunarstöð í eigu borgarinnar með 73 prósent markaðshlutdeild

Ingólfsstræti malbikað.
Ingólfsstræti malbikað.
Auglýsing

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., sem er að öllu leyti í eigu Reykja­vík­ur­borgar og er með póli­tískt skip­aða stjórn yfir sér, er með 73 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í mal­bik­un­ar­verk­efnum á vegum borg­ar­inn­ar. Til sam­an­burðar er Höfði með 24 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í verk­efnum  sem Vega­gerð­in, hinn stóri útboðs­að­ili mal­bik­un­ar­verk­efna á Íslandi, býður út. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Við­skipta­ráðs Íslands á öllum útboðum Reykja­vík­ur­borgar og Vega­gerð­ar­innar á árunum 2008-2016. 

Í grein sem Við­skipta­ráð skrifar um málið segir að eign­ar­hald Reykja­vík­ur­borgar á Höfða sé tíma­skekkja, að atvinnu­rekst­ur­inn skapi áhættu fyrir íbúa borg­ar­innar og eign­ar­haldið því ósam­rým­an­legt sjón­ar­miðum um heil­brigða sam­keppni og hag­kvæma opin­bera þjón­ustu. Því hvetur Við­skipta­ráð til þess að Reykja­vík­ur­borg selji Höfða.

Í grein ráðs­ins seg­ir: „Mik­il­vægt er aðilar á sam­keppn­is­mark­aði keppi á jafn­ræð­is­grund­velli. Staða fyr­ir­tækja er hins vegar óum­flýj­an­lega ólík þegar verk­kaupi og einn bjóð­enda er sami aðil­inn. Það bætir enn síður stöð­una þegar stjórn­ar­maður fyr­ir­tæk­is­ins er jafn­framt borg­ar­full­trúi í Reykja­vík líkt og jafnan á við í til­felli Höfða. Hér gildir einu hvort farið sé eftir lög­bundnum útboðs­leið­um. Á meðan Höfði er í eigu Reykja­vík­ur­borgar er ekki hægt að tryggja jafn­ræði á þessum sam­keppn­is­mark­að­i.“

Auglýsing

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2015 voru tekjur Höfða 1,7 millj­arðar króna og hagn­aður þess 100 millj­ónir króna. Heild­ar­eignir voru rúmur millj­arður króna og árs­verk sam­tals 37 tals­ins. Í grein Við­skipta­ráðs­ins segir að eign­ar­hald borg­ar­innar á „Mal­bik­un­ar­stöð­inni Höfða er tíma­skekkja. Það skekkir sam­keppn­is­stöðu á mark­aðn­um, rök­semdir um fákeppni eiga ekki við og áhætta er tekin með fjár­muni skatt­greið­enda. Tíma­bært er að Reykja­vík­ur­borg taki af skarið og hætti fram­leiðslu og lagn­ingu mal­biks fyrir inn­lendan mark­að. Þannig er hags­munum borg­ar­búa best borg­ið.“

Í stjórn Höfða sitja Mar­grét S. Björns­dótt­ir, sem er stjórn­ar­for­mað­ur, Bryn­hildur Þor­geirs­dóttir og Marta Guð­jóns­dótt­ir,  vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík.

Frétt­inni var breytt klukkan 13:40 eftir ábend­ingu um að upp­lýs­ingar um sam­setn­ingu stjórnar Höfða sem settar voru fram á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins væru rang­ar. Þar stendur að Hildur Sverr­is­dóttir sitji í stjórn Höfða, en hið rétta er að Marta Guð­jóns­dóttir situr þar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None