Bjarni svarar ekki fyrir aflandsskýrslu hjá efnahags- og viðskiptanefnd

7DM_0481_raw_1854.JPG
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra mun ekki koma á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis til þess að ræða um skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæð­um. Nefnd­ar­menn höfðu óskað eftir því að Bjarni kæmi á fund­inn til þess að sitja fyrir svörum um skýrsl­una, sem hann lét gera, og um það hvers vegna hún var ekki birt fyrr en fyrr í þessum mán­uði þegar hún var til­búin í sept­em­ber. 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Píröt­um. Þar kemur fram að Bjarni telji sig ekki hafa meira um málið að segja á þessu stigi, enda hafi hann tjáð sig um málið opin­ber­lega. Bjarni hafi lýst sig reiðu­bú­inn til þess að taka þátt í umræðum um málið á Alþingi eftir að það kemur saman á ný í næstu viku. 

Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Pírötum er haft eftir Smára McCart­hy, full­trúa Pírata í nefnd­inni, að honum finn­ist algjör­lega ótækt að for­sæt­is­ráð­herra vilji ekki gera grein fyrir verkum sínum fyrir nefnd­inni. „Með slíkri neitun vegur hann að eft­ir­lits­hlut­verki Alþing­is. Það að hafa veitt fjöl­miðlum svör er allt annað en að hafa veitt þing­inu við­un­andi svör.“

Auglýsing

Upp­­haf­­lega hafi átt að halda fund­inn síð­­ast­lið­inn fimmt­u­dag en því var frestað meðal ann­­ars vegna þess að óskað var eftir því að fund­­ur­inn yrði sendur út í beinni útsend­ingu á vef Alþing­­is. Það síð­­asta sem nefnd­­ar­­menn höfðu heyrt í gær var að fund­­ur­inn yrði hald­inn öðru hvoru megin við helg­ina, sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG við Kjarn­ann í gær. Logi Ein­­ar­s­­son, for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, sagð­ist þá gera ráð fyrir að fund­­ur­inn verði hald­inn í vik­unni, en ekk­ert fund­­ar­­boð hafi borist. 

Búið var að stað­­festa að Bjarni Bene­dikts­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­mála­ráð­herra og núver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, gæti mætt á fund­inn og svarað fyrir skýrsl­una þrátt fyrir að hann sé ekki lengur fjár­­­mála­ráð­herra. Logi sagði við Kjarn­ann í gær að hann hafi skilið það sem svo að Bjarni myndi mæta fyrir nefnd­ina. Fund­­ur­inn yrði tví­­þættur þegar hann verður hald­inn, ann­­ars vegar myndi Bjarni mæta og svara spurn­ingum um inn­i­hald skýrsl­unnar og aðdrag­anda birt­ingar henn­­ar, og hins vegar muni skýrslu­höf­undar mæta fyrir nefnd­ina. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None