Umhverfisráðherra ræður tvo aðstoðarmenn

steinar og þórunn
Auglýsing

Björt Ólafs­dótt­ir, nýr umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, hefur ráðið sér tvo aðstoð­ar­menn. Þau eru Steinar Kaldal og Þór­unn Pét­urs­dótt­ir. 

Steinar hefur und­an­farið unnið sem verk­efn­is­stjóri hálendis­verk­efnis Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands og Land­verndar sem er sam­vinnu­verk­efni nátt­úru­vernd­ar­sam­taka, úti­vist­ar­sam­taka og Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar og snýr að vernd mið­há­lend­is­ins. Steinar er jafn­framt for­maður FUMÍ, félags umhverf­is­fræð­inga á Ísland­i. Steinar er með stúd­ents­próf frá Mennta­skól­anum við Sund, BA-­próf í stjórn­mála­fræði með atvinnu­lífs­fræði sem auka­grein frá Háskóla Íslands og masters­gráðu (MSc) í umhverf­is­stjórn­un- og stefnu­mótun frá háskól­anum í Lundi í Sví­þjóð. Steinar hefur auk þess lokið frétta­manna­prófi Rík­is­út­varps­ins. Hann hefur áður starfað sem leið­bein­andi á leik­skóla, blaða­maður á Frétta­blað­inu, verk­efna­stjóri í Frí­stunda­mið­stöð­inni Frosta­skjóli og sem sér­fræð­ingur hjá Útlend­inga­stofn­un. 

Þór­unn Pét­urs­dóttir nam umhverf­is­fræði við Garð­yrkju­skóla rík­is­ins og land­fræði við Háskóla Íslands. Hún lauk masters­gráðu (MSc) í land­græðslu­vist­fræði frá Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands og er að ljúka dokt­ors­gráðu í land­græðslu­vist­fræði frá sama skóla. 

Auglýsing

Þór­unn hefur víð­tæka reynslu á sviði umhverf­is- og nátt­úru­vernd­ar­mála. Hún sat um ára­bil í stjórn Land­verndar og var í fyrstu stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garð­ar. Hún hefur starfað hjá Land­græðslu rík­is­ins frá árinu 2003 og sinnt þar fjöl­breyttum verk­efn­um, fyrst sem hér­aðs­full­trúi á Vest­ur­landi en síðar sem sér­fræð­ing­ur, m.a. á sviði sjálf­bærni og vist­heimt­ar. Þá hefur hún tekið þátt í marg­vís­legum sam­starfs­verk­efn­um, inn­lendum sem og erlend­um, sem tengj­ast m.a. auð­linda­nýt­ingu og umhverf­is­vernd. 

Á árunum 2010 – 2013 var Þór­unn í rann­sókn­ar­náms­stöðu hjá Institute of Environ­ment and Susta­ina­bility sem er ein af rann­sókn­ar­stofn­unum Fram­kvæmda­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None