Ólafur verður að bera vitni í Hauck&Aufhäuser-rannsókn

Ólafur Ólafsson.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, Guð­mundur Hjalta­son og vænt­an­lega önnur vitni verða að mæta fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðkomu þýska bank­ans Hauck&Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Þetta er úrskurður Hæsta­réttar Íslands í mál­in­u. 

Rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd­in var skipuð í sum­­­ar eftir að Umboðs­­maður Alþing­is, Tryggvi Gunn­­ar­s­­son, sagði að nýjar upp­­lýs­ingar væru komnar fram um við­­skipt­in. Þessar upp­­lýs­ingar varpa skýr­­ari ljósi á það að aðkoma fyrr­­nefnda bank­a að kaup­un­um hafi ekki verið sú sem full­yrt var þegar gengið var frá sölu rík­­is­ins á eign­­ar­hlutn­­um.

Tryggvi send­i stjórn­­­­­­­skip­un­­­­ar- og eft­ir­lits­­­­nefnd Alþing­is bréf þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd um mál­ið. Snýst málið meðal ann­­ars um að upp­­lýsa hvort Kaup­­þingi hafi í raun fjár­­­magnað kaup­in, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Auglýsing

Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem stjórnar rann­sókn­inni, hafði óskað eftir því að Ólaf­ur, Guð­mundur og tveir aðrir kæmu fyrir nefnd­ina til að svara spurn­ing­um. Þeir neit­uðu hins vegar að gera það. Það varð til þess að Kjartan Bjarni leit­aði til dóm­stóla til að fá þá til að gefa skýrslu, en við því var brugð­ist með því að krefj­ast þess að dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur, Ásmundur Helga­son, viki vegna van­hæf­is. Hann var sagður van­hæfur vegna þess að hann er dóm­ari við rétt­inn líkt og Kjartan Bjarni. Þessu var vísað á bug af dóm­stól­u­m. 

Hins vegar úrskurð­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur fyrir jólin að þeim yrði ekki gert að gefa skýrslu fyrir dómi. Lög­maður Ólafs og Guð­mund­ar, Gísli Guðni Hall, hafði þá sent til­kynn­ingu fyrir þeirra hönd þar sem því var haldið fram að allt í kringum rann­sókn­ar­ferlið væri „und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgj­u­m.“ Hæsti­réttur snéri þeirri ákvörðun í dag og kemst að þeirri nið­ur­stöðu ekki sé væri stoð fyrir því í ákvæðum laga að þeir gætu skor­ast með öllu undan því að gefa vitna­skýrslu fyrir dómi. 

Upp­haf­lega ætl­aði rann­sókn­ar­nefndin að skila skýrslu til Alþingis fyrir ára­mót, en vegna þess að menn­irnir neit­uðu að koma fyrir og bera vitni frestað­ist það. 

Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­bank­inn var seldur til svo­­­nefnds S-hóps­ 16. j­an­úar 2003. Hóp­­ur­inn var leiddur af þeim Ólafi Ólafs­­syni og Finni Ing­­ólfs­­syni, fyrr­ver­andi vara­­for­­manni og ráð­herra Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins. Aðrir lyk­il­­menn í hópnum voru Krist­ján Lofts­­son, oft­­ast kenndur við Hval, Mar­­geir Dan­í­els­­son, Jón Helgi Guð­­munds­­son, oft­­ast kenndur við Byko, og lög­­­mað­­ur­inn Krist­inn Hall­gríms­­son.

Aðkoma Hauck & Auf­hauser að kaup­unum var þannig að bank­inn keypti hlut í félag­inu Eglu, sem Ólafur átti einnig í, og var eitt þeirra sem keypti hlut í Bún­­að­­ar­­bank­an­­um. Guð­­mundur var fram­­kvæmda­­stjóri Eglu. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­­að­­ar­­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­­­­­ur­inn keypti Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­­­­­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­­­­­ur­inn sem stýrð­i honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld ­sög­unnar sem eitt stærsta gjald­­­­­þrot sem orðið hef­­­­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None