Frekari rannsókna þörf á aflandseignum Íslendinga

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Frek­ari rann­sókna er þörf á aflandseignum Íslend­inga. Þá verður að tryggja að hér verði byggðir upp nægj­an­lega öfl­ugir inn­viðir til að fylgj­ast betur með þessum mál­um, ekki síst þegar losað verður end­an­lega um fjár­magns­höft. 

Þetta segir Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri-grænna og full­trúi flokks­ins í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþing­is, en í morgun fór fram fundur í nefnd­inni. Katrín hafði óskað eftir fund­inum fyrir hálfum mán­uði síð­an, eða þegar skýrsla um aflandseignir Íslend­inga var gerð opin­ber. 

Hér má lesa ítar­lega um nið­ur­stöður skýrsl­unn­ar.

Auglýsing

Upp­haf­lega stóð til að Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, kæmi fyrir nefnd­ina til að ræða skýrsl­una og þá töf sem varð á birt­ingu henn­ar. Bjarni sagði hins vegar nefnd­ar­mönnum fyrr í vik­unni að hann myndi ekki mæta, enda hefði hann talað um málið við fjöl­miðla og hefði engu við að bæta. Hann er engu að síður til­bú­inn til að ræða málið við þingið þegar það kemur saman eftir helgi. Við þetta voru nefnd­ar­menn minni­hlut­ans ósátt­ir, en úr varð að fund­ur­inn fór fram í morg­un. 

Á fund­inum kom meðal ann­ars fram að Íslend­ingar hafi staðið Norð­ur­lönd­unum langt að baki þegar kom að lög­gjöf og eft­ir­liti í kringum fjár­magns­flutn­inga og eigna­um­sýslu á aflands­svæðum fyrir hrun. „Um­fang þess­arar afland­svæð­ingar var mun meira hér en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum þó að skattaum­hverfi þar hafi síst verið hag­kvæmara en hér. Miklu mun­aði þar um CFC-­regl­urnar svoköll­uðu sem voru inn­leiddar mun fyrr á Norð­ur­lönd­unum en hér – en hér á landi voru þær inn­leiddar árið 2011,“ segir Katrín á Face­book síðu sinn­i. 

Einnig hafi komið fram að erfitt hafi reynst að nálg­ast full­nægj­andi gögn og skrán­ingar um þessi mál á árunum fyrir hrun, og það sé ekki síst ástæða þess að byggja verði upp inn­viði til að fylgj­ast betur með þessum mál­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None