Íslendingi bannað að fara til Bandaríkjanna

Íslendingur sem fæddur er í Íran fékk ekki að fara með flugi til Bandaríkjanna vegna banns yfirvalda þar í landi,

Myndin
Auglýsing

Íslend­ing­ur­inn Meisam Rafiei sem keppir fyrir Íslands hönd í taekwondo fær ekki að taka þátt á US Open vegna banns Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta við komu fólks til Banda­ríkj­anna frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í meiri­hluta. Rafiei greinir frá þessu á Face­book síðu sinni.

Bann yfir­valda í Banda­ríkj­un­um, sem leitt var fram með til­skipun frá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta, nær til Íran, Jem­en, Sýr­lands, Írak, Sómal­íu, Líbíu og Súd­an. 

Bannið hefur vakið gríð­ar­lega hörð við­brögð víða um heim og í Banda­ríkj­un­um, þar sem því hefur verið mót­mælt stans­laust frá því það var lagt á, ekki síst á flug­völlum vítt og breitt um Banda­rík­in. 

Auglýsing

Rafiei varð í fyrra Norð­ur­landa­meist­ari í taewondo og er hann einnig lands­liðs­þjálf­ari Íslands.  Hann er fæddur í Íran og hlaut íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2011.  Hann varð heims­meist­ari ung­linga árið 2002 og heims­meist­ari her­manna árin 2006 og 2008.

Upp­fært 22:38:  –„Ta­ekvondosam­band Íslands sendi frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem bann banda­ríska yfir­valda er harm­að. 

Taekwondosam­band Íslands, TKÍ, harmar þá ákvörðun Banda­ríkja­stjórnar að meina Meisam Rafi­ei, lands­liðs­manni í taekwondo og fyrrum lands­liðs­þjálf­ara, inn­göngu í Banda­rík­in.  Meisam hugð­ist keppa á US Open sem fram fer í vik­unni í Las Veg­as, en var meinað að ferð­ast þangað á þeirri for­sendu að hann fædd­ist í Íran, og er ein­stak­lingum þaðan nú bannað að ferð­ast til Banda­ríkj­anna.

Meisam, sem varð íslenskur rík­is­borg­ari árið 2012, er fram­úr­skar­andi íþrótta­maður og hefur verið íþrótt­inni á Íslandi mikil lyfti­stöng síðan hann kom hingað til lands og hefur hann um ára­bil verið fasta­maður í lands­liði Íslands í bar­daga.

TKÍ lýsir yfir fullum stuðn­ingi við Meisam og er stjórn sam­bands­ins þess full­viss að íslensk stjórn­völd munu gæta hags­muna íslenskra rík­is­borg­ara í þessu máli sem öðrum, og að hann muni geta keppt fyrir Íslands hönd á mótum erlendis í anda þeirrar virð­ingar sem er aðals­merki íþrótt­ar­inn­ar.

Stjórn Taekwondosam­bands Íslands.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None