Óttarr: Ekki ætlunin að einkavæða eða stórauka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

7DM_0136_raw_2054.JPG
Auglýsing

„Ég get full­vissað hv. þing­mann og þing­heim allan um að sá ráð­herra sem hér stendur mun ekki ger­a grund­vall­ar­breyt­ingar á heil­brigð­is­kerf­inu. Það stendur ekki til. Fyrsta verk mitt er að vinna að heild­stæðri heil­brigð­is­stefnu áður en nokkuð annað verður gert,“ sagði Ótt­arr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra á þingi í morg­un. 

Ótt­arr svar­aði nokkrum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum frá stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður VG, Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, og Guð­jón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurðu hann öll út í einka­rekstur og einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu, í ljósi frétta af áformum Klíník­ur­innar í Ármúla um rekstur legu­deild­ar. 

Auglýsing

„Að und­an­förnu hefur verið til umræðu umsókn einka­að­ila um að fá samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands um að opna nýja starf­semi sem felur í sér sér­hæfðar skurð­að­gerðir og legu­deild fyrir allt að fimm daga. Þetta er í raun og veru ekki hægt að kalla neitt annað en einka­rekið sjúkra­hús enda líta bæði land­læknir og einka­að­il­inn, Klíníkin sjálf, á starf­sem­ina sem sér­hæfða sjúkra­hús­þjón­ust­u,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í fyrstu fyr­ir­spurn­inni. Hún sagði að ef starf­semin verði skil­greind þannig myndi það koma í hlut Ótt­arrs að ákveða hvort veita eigi starfs­leyfi. „Hjá ráð­herra hvílir því risa­stór ákvörðun sem haft getur óaft­ur­kræf áhrif á íslenskt heil­brigð­is­kerfi og væri í raun grund­vall­ar­stefnu­breyt­ing í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu. Það er ólíku saman að jafna stofu­rekstri sjálf­stætt starf­andi sér­fræði­lækna, ein­yrkja­starf­semi og því sem hér er á döf­inni, því að þarna er í raun farið í kjarna­starf­semi Land­spít­al­ans og eftir atvikum ann­arra sjúkra­húsa út um land.“ Katrín spurði Ótt­arr hvort ekki væri hægt að treysta því að hann myndi standa vörð um hið opin­bera heil­brigð­is­kerf­i. 

„Það er ekki ætlun mín að einka­væða kerfið eða auka stór­kost­lega einka­rekstur í kerf­inu. Það er ljóst að íslenska heil­brigð­is­kerfið er opin­bert heil­brigð­is­kerfi að því leyt­inu til að greitt er fyrir mest­alla heil­brigð­is­þjón­ustu af opin­beru fé. Það er gert með yfir­um­sjón og undir ábyrgð heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og opin­berra aðila. Það er engin ætlun mín, eða ann­arra, held ég, og eng­inn póli­tískur vilji til þess að gera breyt­ingar þar á,“ sagði Ótt­arr í svari við fyr­ir­spurn Hall­dóru. 

Hins vegar sagði Ótt­arr að hluti af rekstri og vinnu í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu sé nú þegar unn­inn af einka­að­il­um, bæði sjálfs­eign­ar­stofn­unum og sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­ing­um. „En það er allt gert með opin­beru fé með eft­ir­liti, umsjón og ákvörðun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og opin­berra heil­brigð­is­yf­ir­valda. Það stendur ekki til að gera breyt­ingar þar á,“ sagði ráð­herr­ann. Hann sagð­ist vilja að stefnu­mótun heil­brigð­is­stefnu verði unnin á breiðum grund­velli og með eins lýð­ræð­is­legum vinnu­br­göðum og hægt er. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None