Washington ríki lagði Trump aftur

Áfrýjunardómstóll staðfesti niðurstöðu alríkisdómstólsins í Washington ríkis.

Donald Trump
Auglýsing

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll í San Francisco hefur úrskurðað að tíma­bundið lög­bann sem sett var á til­skipun Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta, um ferða­bann borg­ara sjö ríkja, Líb­íu, Jem­en, Sýr­lands, Írak, Íran, Sómalíu og Súd­an, skuli standa. For­seta­til­skip­unin hefur því ekk­ert gildi leng­ur, eins og staðan er, og mega borg­arar þess­ara landa fara inn í landið með lög­mæta vega­bréfs­á­rit­un.



Don­ald Trump hefur þegar tjáð sig á Twitt­er, og segir að mál­inu verði haldið til streitu fyrir dóm­stólum - þá vænt­an­lega hjá Hæsta­rétti - og segir að öryggi þjóð­ar­innar sé í húfi. 



Auglýsing

Þann 27. jan­úar síð­ast­lið­inn gaf Trump út til­skipun þess efn­is, að íbúar Írans, Íraks, Jem­ens, Líb­íu, Sómal­íu, Súd­ans og Sýr­lands, skyldu ekki fá að stíga fæti á banda­ríska grund, jafn­vel þótt þeir hefðu gildar vega­bréfs­á­rit­anir undir hönd­um. Þá náði bannið einnig til fólks sem bjó í Banda­ríkj­unum og hafði tengsl við ríkin sjö, jafn­vel þó það hefði græna kort­ið.

Á sama degi og bannið var sett á var horfið frá því að taka á móti 10 þús­und flótta­mönnum frá Sýr­landi, eins og ákveðið hafði verið í tíð Baracks Obama, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta.

Was­hington ríki kærði ferða­bannið til alrík­is­dóm­stóls og 3. febr­úar og setti Jason L. Robarts, dóm­ari við svæð­is­dóm­stól all­rík­is­dóm­stóls­ins í Was­hington­ríki, tímbundið lög­bann á fram­kvæmd til­skip­un­ar­inn­ar. 



Meg­in­rökin voru þau, í dóms­mál­inu, að það fæli í sér brot á stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og væri alltof víð­tæk aðgerð, án nægi­legs rök­stuðn­ings. Tíma­bundið lög­banna var sett á grund­velli þessi að vafi væri uppi um hvort lög­bannið væri í takt við lög og stjórn­ar­skrá, og var það sett á þeim for­send­um.

Banda­rísk stjórn­völd áfrýj­uðu lög­bann­inu til áfrýj­un­ar­dóm­stóls­ins í San Francisco, sem teygir sig yfir vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna, Ala­ska, Hawaii og fleiri ríki. Mál­flutn­ingur fór þar fram á þriðju­dag, og sagði rík­is­stjóri Was­hington, Bob Fergu­son - sem hefur leitt und­ir­bún­ing mála­ferl­anna gegn komu­banni Trump - að hann væri sann­færður um að bannið væri ólög­legt, stæð­ist ekki stjórn­ar­skrá og að Was­hington ríki - og fleiri með­stefn­endur í mál­inu - myndu sigr­a. 



Það hefur nú gerst en lík­legt má telja, sé mið tekið af Twitter færslu Trumps for­seta, að málið verið lagt fyrir Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna að dæma um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None