Þorgerður Katrín: Það er deiluaðila að leysa málið

Ögurstund er nú í kjaradeilu sjómanna og útgerða.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Auglýsing

Samn­inga­nefndir sjó­manna og útvegs­manna fóru á fund Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dótt­ur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í Sjáv­ar­út­vegs­hús­inu seint í gær­kvöldið eftir að hafa setið á samn­inga­fundum í Karp­hús­inu stóran hluta dags. 

Í til­kynn­ingu frá sjó­mönnum segir að góður gangur hafi verið í við­ræðum und­an­farna daga. „Við­ræður SFS og sjó­manna­sam­tak­anna hafa gengið vel liðna daga og sam­eig­in­legur skiln­ingur er með aðilum um helstu kröf­ur. Líkt og komið hefur fram í umræðu hafa sjó­menn talið að leið­rétt­ingar sé þörf á ójafn­ræði í skatta­legri með­ferð á dag­pen­ing­um. Sjó­menn telja mik­il­vægt að úr þessu verði bætt. Þar sem um rétt­læt­is­mál er að ræða hefur þetta veru­leg áhrif í þeim kjara­við­ræðum sem nú standa yfir. Ráð­herra hefur lagt til að fram fari heild­stæð grein­ing og skoðun á fæð­is- og dag­pen­ingum almennt á vinnu­mark­aði. Grein­ing þessi er vafa­laust jákvæð. Enn stendur þó útaf að fá við­ur­kenn­ingu stjórn­valda á skatta­legri með­ferð á dag­pen­inga­greiðslum til sjó­manna,“ segir í til­kynn­ingu sjó­manna.

Þor­gerður Katrín sagði að fundi loknum í gær­kvöldi að fund­ar­menn hefðu farið yfir stöð­una og skipst á skoð­un­um.

Auglýsing

„Þeir voru ein­fald­lega að upp­lýsa mig nákvæm­lega um stöð­una. Svo voru skoð­ana­skipti um eitt og ann­að," sagði Þor­gerður Katrín við RÚV að fundi lokn­um. „­Meðal ann­ars um fæð­is- og dag­pen­inga. Ég lagði fram til­lögu meðal ann­ars um heild­stæða nálgun og grein­ingu, og myndum fara hratt í það að skoða fæð­is- og dag­pen­inga á almennum vinnu­mark­aði með til­liti til skattaí­viln­ana. Við sjáum þá hvernig staðan er og hægt að bregð­ast við óskum sjó­manna. Það er það sem við erum til­búin til þess að ger­a,“ sagði ráð­herra. 

Í við­talið við mbl.is sagði Þor­gerður Katrín að það væri sjó­manna og útgerðar að leysa deil­una með samn­ing­um, en verk­fall sjó­manna og kjara­deil­unar hafa verið óleystar frá 14. des­em­ber

Deilu­að­ilar eru bún­­ir að deila í á tí­undu viku og þeir hljóta að ráða við það að semja í þess­­ari mik­il­vægu at­vinn­u­­grein. Það er ein­­föld krafa sem við hljót­um öll að gera til þeirra. Það er mjög sér­­stakt og eig­in­­lega eins­­dæmi ef rík­­is­­valdið á eft­ir á, þegar menn eru nokk­urn veg­inn að koma sér sam­an, að koma síðan og upp­­­fylla kröfu sem gæti sent ekki réttu skila­­boðin inn í kom­andi kjara­­deil­­ur,“ sagði Þor­gerður Katrín.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent