Meirihluti landsmanna telur Ísland vera á rangri braut

Ný könnun sýnir að marktækt fleiri Íslendingar telji hlutina á Íslandi vera á rangri braut en þeir sem telja þá vera að þróast í rétta átt. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins og launaháir eru ánægðastir.

Mótmæli
Auglýsing

54,3 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könn­un MMR sögðu að hlut­irnir á Íslandi séu á rangri braut. Á móti sögðu 45,7 pró­sent að þeir væru að þró­ast í rétta átt. Þeir sem höfðu áhyggjur af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­mál­um, fátækt og/eða félags­legum ójöfn­uði og við­hald­i vel­ferð­ar­kerf­is­ins voru lík­legri til að telja hlut­ina á Íslandi almennt séð á rangri braut. Þeir sem höfðu mestar áhyggjur af glæpum og ofbeldi, ofþyngd barna og verð­bólgu reynd­ust lík­legri til að telja hlut­ina á réttri leið.

Athygli vekur að eldra fólk, í ald­urs­hópnum 50-67 ára, er lík­leg­ast til að telja hlut­ina vera á rangri braut. Innan þess hóps töldu 62 pró­sent að svo væri. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 18-29 ára, og sá elsti, 68 ára og eldri, voru lík­leg­astir til að telja að hlut­irnir væru hér á réttri leið. Alls sögð­ust 51 pró­sent þeirra sem til­heyra yngsta ald­urs­hópnum að svo væri en 52 pró­sent þeirra sem eru yfir 68 ára. 

Afstaðan er einnig mjög mis­mun­andi eftir tekju­hópum og stjórn­mála­skoð­un­um. Um tveir af hverjum þremur sem hafa ­tekj­ur undir 600 þús­und krónum á mán­uði telja að hlut­irnir hér­lendis séu á rangri braut á meðan að um og yfir helm­ingur þeirra sem eru með hærri tekjur telja að Ísland sé að stefna í rétta átt. Til að mynda telja 56 pró­sent þeirra sem eru með meira en milljón krónur í mán­að­ar­laun að stefnan sé rétt. 

Auglýsing

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar skera sig úr þegar kemur að afstöðu til þess hvort stefna lands­ins sé rétt. Ein­ungis 18 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og 20 pró­sent kjós­enda Við­reisnar telja landið vera á rangri braut en um átta af hverjum tíu á meðal þeirra telja að stefnan sé rétt. Athygli vekur að 39 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíð­ar, sem situr í rík­is­stjórn með áður­nefndum flokk­um, telja að Ísland sé á rangri braut. Þá vekur líka athygli að meiri­hluti kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins (52 pró­sent) telja að landið sé á réttri braut þrátt fyrir að flokk­ur­inn sé ekki í rík­is­stjórn. Á meðal kjós­enda hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna er sú afstaða mjög skýr að hlut­irnir séu á rangri braut, en 66-79 pró­sent þeirra telja að svo sé. 

Mun­ur­inn er einnig umtals­verður á milli­ land­svæða. Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru nokkuð jafnt skiptir í afstöðu sinni til stefnu lands­ins (51 pró­sent telur það á rangri leið en 49 pró­sent á réttri braut) á meðan að rúm­lega sex af hverjum tíu sem búa á lands­byggð­inni telja að hlut­irnir séu að þró­ast á rangri braut. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None