Innherjar fóru með ferðatöskur af reiðufé út úr bönkunum í hruninu

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir að Seðlabanki Íslands hafi prentað aukið lausafé til að mæta eftirspurn í hruninu. Aðilar sem áttu innangengt í bönkunum hafi farið þaðan út með fjárfúlgur í ferðatöskum.

Davíð Oddsson
Auglýsing

Til eru þekkt dæmi um að aðilar sem áttu inn­an­gengt í íslensku bönk­unum þegar banka­hrunið reið yfir hafi farið þaðan út með „fjár­fúlgur í ferða­töskum“. Þetta hafi gert það að verkum að litlu hafi mátt muna að ekki hafi verið hefði verið hægt að anna eft­ir­spurn fólks­ins í land­inu eftir reiðufé þegar það fyllt­ist óró­leika og reyndi að taka slíkt út í mestu óviss­unni. Í fram­hald­inu hafi Seðla­banki Íslands prentað veru­lega aukið lausafé til að mæta eft­ir­spurn almenn­ings. Þetta kemur fram í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag, en rit­stjóri þess og helsti leið­ara­höf­undur er Davíð Odds­son, sem var seðla­banka­stjóri haustið 2008, þegar banka­hrunið stóð yfir.

Leið­ar­inn fjallar að mestu um þá hug­mynd Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að þrengja að notkun reiðu­fjár með laga­setn­ingu. Bene­dikt sagði á Face­book-­síðu sinni í lok jan­úar að hann ætli að und­ir­búa lög­gjöf „til þess að þrengja að svarta hag­­kerf­inu þar sem bannað yrði að greiða laun út með reiðufé og all­ir þyrftu að borga hluti yfir ákveðnu verði í gegn­um banka eða kred­it­kort þannig að við­skipt­in yrðu rekj­an­­leg.“ Þann 10. febr­úar skip­aði Bene­dikt svo starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að fjalla um umfang og áhrif skattaund­an­skota og skattsvika á íslenskan þjóð­ar­bú­skap, ásamt því að gera til­lögur um hvernig megi minnka svartra hag­kerf­ið.

Leið­ara­höf­und­ur­inn segir að þessar hug­myndir um að „tak­marka aðganga að reiðufé með vald­boði“ séu ekki væn­leg­ar. Skoðun Seðla­banka Íslands á kredit­korta­við­skiptum ein­stak­linga erlend­is, til­raun vinstri stjórn­ar­innar um að koma inn á fólki raf­rænum skil­ríkjum um hatti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og aðgerð rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar um að skil­yrða umsókn um skulda­leið­rétt­ingu við þá sem höfðu orðið sér úti um raf­ræn skil­ríki séu allt dæmi um sam­bæri­legt vald­boð. Öll þau spor hræði.

Auglýsing

Í leið­ar­anum segir enn frem­ur:„Enn þá geym­ist það mörgum í minni þegar fólkið í land­inu fyllt­ist óró­leika og þusti að bönk­unum fyrir tæpum ára­tug og tók út hand­bært fé. Mátti þá litlu muna að anna mætti eft­ir­spurn. En vitað er að hefði það ekki tek­ist hefði gripið um sig enn verri til­finn­ing hjá almenn­ingi. Það eru líka þekkt dæmi um þá skugga­hlið að þeir sem áttu inn­an­gengt í bank­ana fóru sumir út þaðan með fjár­fúlgur í ferða­töskum sem gerði erf­ið­ara um að mæta skömmt­uðum óskum hinna. Í fram­hald­inu var prentað veru­lega aukið lausa­fé, sem geymt er í öfl­ugum geymslum Seðla­bank­ans og bank­inn er því betur und­ir­bú­inn fyrir áhlaup en áður.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None