Enginn þingmaður Viðreisnar og Bjartrar framtíðar ræddi leiðréttinguna

Katrín Jakobsdóttir formaður VG vakti athygli á því að enginn þingmaður Viðreisnar eða Bjartrar framtíðar tók þátt í umræðum um leiðréttingarskýrsluna í þinginu í dag. Ný ríkisstjórn minntist ekki á húsnæðismál í stefnuskrá sinni.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, sagði leið­rétt­ing­ar­að­gerðar síð­ustu rík­is­stjórnar hafa verið ójafn­að­ar­að­gerðir á þingi í dag. „Leið­rétt­ingin var ekki aðgerð til að jafna kjör.“ Katrín var upp­hafs­maður umræðu um skýrslu um það hvernig skulda­nið­ur­færslan, leið­rétt­ingin svo­kall­aða, skipt­ist á milli lands­manna. Skýrslan var gerð opin­ber í jan­úar síð­ast­liðn­um, þrátt fyrir að hafa verið til­búin fyrir kosn­ing­ar. 

Katrín vakti athygli á því að hvorki þing­menn frá Við­reisn né Bjartri fram­tíð tóku þátt í umræð­un­um. Hún sagði það end­ur­spegla að ekk­ert væri minnst á hús­næð­is­mál í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórn­ar. Búið væri að leiða í ljós að nið­ur­færslan hafi endað að stærstum hluta hjá þeim tekju­hæstu og eigna­mestu. Unga fólkið hafi setið eftir og það bíði eftir auknum úrræðum bæði á leigu- og eigna­mark­að­i. 

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra varði leið­rétt­ing­una með svip­uðum hætti og hann hefur áður gert. Hann tal­aði um fyrri aðgerð­ir, líkt og 110 pró­senta leið­ina, sem hefðu ekki dugað til að takast á við erf­iða skulda­stöðu heim­il­anna eftir hrun­ið, sem hafi verið orðin að sjálf­stæðu efna­hags­legu vanda­máli. Hann sagði það hafa verið rétt­læt­is­rök, jafn­ræð­is­rök og sann­girn­is­rök fyrir því að ráð­ast í nið­ur­færslu á verð­tryggðum hús­næð­is­lán­um. Hann sagði einnig að leið­rétt­ingin hafi ekki verið tekju­jöfn­un­ar­að­gerð, hún hafi verið sér­tæk aðgerð sem var beint að þeim sem skuld­uðu og áttu heim­ili. „Hún heppn­að­ist frá­bær­lega þessi aðgerð.“ Náðst hafi að bæta skulda­stöð­una veru­lega, mun meira en á öðrum Norð­ur­lönd­un­um.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var í for­svari fyrir leið­rétt­ing­ar­að­gerð­irn­ar, tók til máls í umræð­un­um. Hann lýsti yfir ánægju með það hvernig Bjarni Bene­dikts­son varði aðgerð­irnar og gagn­rýndi upp­legg Vinstri grænna „og félaga“ með skýrsl­unni sjálfri og umræðum um hana. Það sé frá­leitt að ræða það hvernig leið­rétt­ingin dreifð­ist á alla. Lilja Alfreðs­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók í sama streng og aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, og sagði að leið­rétt­ingin hefði verið „ein far­sælasta aðgerð sem ráð­ist hefur verið í.“ Hún hafi verið sann­kölluð milli­stétt­ar­að­gerð. 

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gerði sér­stak­lega að umtals­efni að skýrsl­unni um nið­ur­fell­ing­una hafi verið haldið frá almenn­ingi, og sagði það alvar­legt mál. Það hafi verið sífelldur felu­leikur með það hvernig fjár­mun­irnir skipt­ust milli lands­manna, og að leigj­end­ur, yngra fólk og lands­byggðar­í­búar hefðu setið eft­ir. Þá efað­ist hann um að for­sæt­is­ráð­herra myndi birta næstu óþægi­legu skýrslu. „Það þurfti nýjan fjár­mála­ráð­herra til að birta þessa skýrslu.“ Viktor Orri Val­garðs­son, þing­maður Pírata, spurði hvort nú hafi ekki mynd­ast for­dæmi, og þeir sem ekki ættu hús­næði nú fengju hækkun síð­ustu ára bætta úr rík­is­sjóði líkt og aðrir hefðu fengið skulda­stöðu sína bætta. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None