Hert á innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum – „Panikk“ hjá milljónum manna

Mikil hræðsla hefur gripið um sig hjá mörgum innflytjendum vegna fyrirhugaðra áherslubreytinga stjórnvalda.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Auglýsing

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum ætla sér að herða veru­lega á inn­flytj­enda­lög­gjöf og reglu sem snúa að inn­flytj­endum með það að mark­miði að fækka stór­kost­lega inn­flytj­endum sem ekki hafa leyfi til að vera í land­inu sam­kvæmt lag­anna bók­staf. 

Talið er að um 12 millj­ónir manna í Banda­ríkj­unum séu ekki með leyfi til að dvelja í land­inu í lengri tíma um þessar mund­ir, og þar með hvorki með land­vist­ar­leyfi eða atvinnu­leyfi (Undocumented immigrants). 

Margar borgir í Banda­ríkj­unum hafa barist fyrir því að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti og stjórn­völd undir hans stjórn, grípi ekki til þess ráðs að koma senda fólk úr landi, þar sem það geti skapað „panikk“ hjá millj­ónum manna og brotið upp fjöl­skyldu­mynstur um allt land, með til­heyr­andi vanda­málum og félags­legu óör­ygg­i. 

Auglýsing



Í reglu­verk­inu, sem fjallað er um ítar­lega á vef Was­hington Post, segir meðal ann­ars að inn­flytj­endur verði sendir úr landi fyrir minnstu mögu­lega frá­vik frá regl­un­um, svo sem fyrir minni­háttar brot af ein­hverju tagi, eða jafn­vel bara grun um afbrot. Lög­fræð­ingar sam­taka inn­flytj­enda segja að nú hafi stjórn­völd ákveðið að ein­blína á „alla“ þá sem ekki hafa til­skilin leyfi til að vera í land­inu, en ekki ein­ungis þá sem hafa þótt óæski­leg­ir, t.d. Þá sem hafa framið alvar­leg lög­brot. Þetta sé óásætt­an­leg stefnu­breyt­ing sem muni ala á ótta og valda miklum vand­ræðum í Banda­ríkj­un­um. 

Árið 2015 voru 333 þús­und ólög­legir inn­flytj­endur sendir úr landi, sam­kvæmt frétt Was­hington Post, en Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, var gagn­rýndur nokkuð fyrir sína stefnu þegar komið að inn­flytj­end­um, og þá fyrir að ganga fram af of mik­illi hörku. 

Eitt af því sem gerir inn­flytj­enda­málin flókin í Banda­ríkj­unum eru ólíkar teg­undir dval­ar- og atvinnu­leyfa sem veita mis­jafn­lega mik­inn rétt til sam­fé­lags­þátt­töku í Banda­ríkj­un­um. Fyrir vikið er hóp­ur­inn á hverjum tíma oft stór, sem er með útrunnin leyfi til að vera í land­inu. Borgir eru sér­stak­lega með stóran hóp fólks sem ekki telst vera með til­skilin leyfi, en borg­ar­yf­ir­völd hafa víð­ast hvar metið stöð­una þannig, að ekki borgi sig að ganga of hart fram gagn­vart þessum hópi. Við það skap­ist meiri vandi en leys­ist.

Þessi stefnu­breyt­ing nú undir stjórn Trumps þyk­ir, að mati lög­fræð­inga sam­taka inn­flytj­enda í Banda­ríkj­un­um, ganga alltof langt og bjóða hætt­un­inni heim. 

Á móti hafa stjórn­völd sagt, að þau hafi ekki mann­afla eða vilja til að fara á eftir hverjum og einum sem mögu­lega er ólög­lega í land­inu, á þeim tíma­punkti. Þvert á móti verður ein­blínt áfram á að for­gangs­raða. Vegna þess­ara áforma um að víkka út heim­ildir stjórn­valda til að grípa til aðgerða gagn­vart fólki, þá geti fólk átt á hættu að vera vísað úr landi með svo til fyr­ir­vara­lausum hætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None