Erlend viðskiptakjör ástæða lágrar verðbólgu

Innlend verðbólga, með húsnæðisverði, er yfir verðbólgumarkmiði. Hagstæð erlend viðskiptakjör hafa togað á móti og gert það að verkum að verðbólgan hefur haldist undir markmiðum í þrjú ár.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Verð­bólga á Íslandi er lág vegna þess að erlend við­skipta­kjör, t.d. verð á olíu og ann­ari hrá­vöru, eru hag­stæð. Inn­lend verð­bólga án hús­næð­is­verðs er um tvö pró­sent og að við­bættum hús­næð­isliðnum væri verð­bólgan enn hærri. Þetta kom fram á fundi full­trúa pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands með efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í dag.

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, spurði hver hlut­i inn­fluttr­ar­ verð­bólgu væri í því að verð­bólga hefði verið lág hér um ára­bil, en hún hefur nú verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans í þrjú ár. Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor í hag­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd, svar­aði því til að erlenda verð­bólgan drægi verð­bólgu á Íslandi nið­ur. Inn­lend verð­bólga án hús­næð­is­verðs væri um tvö pró­sent og með hús­næð­is­verði enn hærri. Í raun mætti segja að ytri aðstæður tog­uðu verð­bólgu nið­ur, inn­lend verð­bólga án hús­næð­is­verð væri í kringum tvö pró­sent og svo togar hús­næð­is­verðið verð­bólgu upp. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði það rétta ályktun að erlend við­skipta­kjör réðu mestu um að verð­bólgan væri lág.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hald­ist mjög lágt und­an­farin miss­eri þótt það hafi hækkað aftur á síð­ustu mán­uð­um. Á sama tíma hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 70 pró­sent frá árs­lokum 2010. Pen­inga­stefnu­nefndin sagð­ist ekki sjá nein merki um bólu á hús­næð­is­mark­aði þrátt fyrir þessar miklu hækk­an­ir. Þær orsak­ist fyrst og fremst af mark­aðs­að­stæð­um, en eft­ir­spurn eftir hús­næði á Íslandi er miklu meira en fram­boð.

Auglýsing

Verð­bólga á Íslandi er sem stendur 1,9 pró­sent. Í síð­asta riti Pen­inga­mála kom fram að spá Seðla­bank­ans geri ráð fyrir að verð­bólga verði um tvö pró­sent fram yfir mitt ár, en taki þá að þok­ast upp á við og verði komin í mark­mið á seinni hluta árs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None