Unnið að sölu á allt að helmingshlut í Arion banka

Vogunarsjóðir umsvifamiklir í eigendahópi bankans, samkvæmt fréttum Fréttablaðsins í dag.

Arion Banki
Auglýsing

Kaup­þing vinnur nú að því að ganga frá sölu á 40 til 50 pró­senta hlut félags­ins í Arion banka í lok­uðu útboði til banda­rískra fjár­fest­inga­sjóða og íslenskra líf­eyr­is­sjóða. ­Kaup­verðið mun þá ­nema á bil­inu 70 til 90 millj­örðum íslenskra króna en vænt­ingar eru um að við­skiptin verði kláruð á allra næsta vik­um, sam­kvæmt heim­ild­um ­Mark­að­ar­ins, en fjallað er um málið á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag. 

Ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­anum en kröfu­hafar Kaup­þings 87 pró­sent.

Sölu­and­virðið færi í að gera upp 84 millj­arða veð­skulda­bréf ­sem Kaup­þing gaf út til íslenska ­rík­is­ins í árs­byrjun 2016, segir í frétt Frétta­blaðs­ins.

Auglýsing

Kaup­samn­ingar við banda­rísku ­sjóð­ina eru langt komnir en á­formað er að fjórir fjár­fest­inga­sjóð­ir ­kaupi allt að 25 pró­senta hlut í bank­an­um. Að minnsta kosti tveir þess­ara sjóða – Taconic Capi­tal og Och-Ziff Capi­tal – eru jafn­framt á meðal kröfu­hafa Kaup­þings. Eng­inn einn þeirra verður með meira en 10 pró­senta hlut í Arion banka en Taconic Capi­tal hyggst vera með­ ­stærsta ein­staka eign­ar­hlut­inn á meðal sjóð­anna. 

Sá vog­un­ar­sjóð­ur­ er lang­sam­lega umsvifa­mestur í kröfu­hafa­hópi Kaup­þings og átti í lok síð­asta árs um 40 pró­sent allra krafna á hendur félag­inu. Ríkið hefur for­kaups­rétt að Arion banka ef Kaup­þing hyggst selja hlut í bank­anum á geng­inu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé.  

Samn­ingar við líf­eyr­is­sjóð­ina eru ekki jafn langt á veg komn­ir en af hálfu Kaup­þings er engu að ­síður búist við að nið­ur­staða fáist á næst­unni um hversu mikil aðkoma þeirra verð­ur, að því er segir í Frétta­blað­inu.

Vænt­an­leg sala Kaup­þings á tug­pró­senta hlut í Arion í lok­uð­u út­boði, sem ekki var útlit fyrir í árs­byrj­un, þýðir að fyr­ir­hugað almennt hluta­fjár­út­boð bank­ans fer fram ­seinna en áður var áætl­að. „Ekk­ert hefur breyst varð­andi áform Kaup­þings um að skrá bank­ann á mark­að á Íslandi og í Sví­þjóð en sam­kvæmt þeirri tíma­línu sem félagið vinn­ur núna eftir verður útboðið aftur á móti haldið í fyrsta lagi í maí eða júní á þessu ári. Sá hlutur sem verð- ur þá boðin til sölu gæti verið um 30 til 40 pró­sent,“ segir í frétt Frétta­blaðs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None