Öllum 46 ríkissaksóknurum sem Obama skipaði skipt út

Jeff Sessions dómsmálaráðherra, sem staðinn var að ósannindum eiðsvarinn frammi fyrir þinginu, er byrjaður að láta til sín taka.

Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Auglýsing

Stjórn Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­esta hefur kraf­ist afsagnar allra þeirra 46 rík­is­sak­sókn­ara sem skip­aðir voru í emb­ætti í átta ára valda­tíð Baracks Obama. Það er dóms­mála­ráðu­neyti Jeff Sessions sem stendur að ákvörð­un­inni, og hefur þegar komið því til skila að rík­is­sak­sókn­ar­arnir segi taf­ar­laus af sér.

Í Banda­ríkj­unum er hefð fyrir því að hátt­sett­ir, póli­tískt skip­aðir emb­ætt­is­menn innan stjórn­ar­ráðs­ins og und­ir­stofn­anna stjórn­valda, séu beðnir að segja af sér í kjöl­far manna­skipta í Hvíta hús­inu. Þetta á meðal ann­ars við um rík­is­sak­sókn­ara en þeir eru 93 tals­ins.

Ákvörð­unin kom þó veru­lega á óvart, að því er segir í New York Times, þar sem nær eng­inn aðdrag­andi var að henni, og fyr­ir­var­inn fyrir skiptin því lít­ill. Þetta getur sett dóms­mál í upp­nám sem nú eru í gangi og hafa Demókratar í þing­inu þegar komið þeim skila­boðum á fram­færi. 



Fólk sem er í for­svari fyrir ráðu­neyti Sessions hefur hafnað þessu, og sagt að fólk verið skipað fljótt og skiptin muni ganga vel fyrir sig. Auk þess geti aðrir sak­sókn­arar tekið við kefl­inu og klárað þau mál sem þarf að klára. 



Óhætt er að segja að Sessions sé undir pressu eftir að hann var stað­inn að ósann­indum frammi fyrir þing­nefnd í Banda­ríkj­un­um, þar sem hann sagð­ist ekki hafa verið í sam­skiptum við Rússa. Gögn birt­ust síðar sem sýndu glögg­lega, að Sessions hafði verið í sam­skiptum við Rússa í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­un­um, fyrst í júlí og síðan í sept­em­ber. Í bæði skiptin fund­aði hann með Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um. 



Óskað hefur verið eftir því í þing­inu, að sér­stök rann­sókn fari fram á tengslum Sessions og fleiri, þar á meðal Mich­ael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa, en hann var einnig stað­inn að ósann­ind­um, þegar koma að sam­skiptum við Rússa, og þurfti því að segja af sér.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent