Aflandskrónueigandi: Við ætlum að bíða eftir hagstæðara gengi

Sjóðirnir sem eiga aflandskrónurnar sem eftir sitja ætla sér að bíða eftir hagstæðara gengi og segjast tilbúnir að sýna þolinmæði.

peningar
Auglýsing

Einn stærsti eig­andi aflandskróna segir að með því að hafna til­boði Seðla­banka Íslands um að selja þeim evrur fyrir krónur á geng­inu 137.5 krónur fyrir hverja evru, séu þeir að veðja á að fá hag­stæð­ara gengi þegar höftum verður að fullu aflétt.

Þetta kemur fram í umfjöllun Bloomberg, þar sem rætt er við Peter Sheehan, aðal­grein­anda banda­ríska Loomis Say­les & Co., sem á aflandskrónur fyrir um 50 millj­arða króna. Hann segir sjóð­inn horfa til þess að fá hag­stæð­ara gengi og því hafi til­boði stjórn­valda ekki verið tek­ið.

Um 200 millj­arðar aflandskróna eru enn í hinni svo­nefndu aflandskrón­u­snjó­hengju. Vog­un­ar­sjóðir halda á þess­ari eign að mestu, en auk Loomis eru það Eaton Vance Corp., Autonomy Capi­tal LP and Discovery Capi­tal LLC. Til­boð stjórn­valda um kaup á fyrr­nefndu gengi rennur út 28. mars, og því skýrist það fyrst þá hvernig staðan verður varð­andi aflandskrón­urn­ar.

Eaton Vance og Autonomy Capi­tal eiga aðild að dóms­máli gagn­vart stjórn­völd­um, sem snýrt að því þegar hluti aflandskrónu­vand­ans var leystu á gengi sem nam um 190 krónum fyrir hverja evru. Sjóð­irnir telja stjórn­völd hafa verið í órétti í þessum aðgerð­um.

Auglýsing

Sheehan segir í við­tali við Bloomberg að það sé vilji Loomis Say­les & Co. að sýna þol­in­mæði, og bíða eftir hag­stæð­ara gengi. „Við erum til­búin að horfa til langs tíma og bíða þar til jafn­vægi næst á milli aflands­gengis og mark­aðs­geng­is,“ segir Sheehan, og vitnar meðal ann­ars til betri láns­hæf­is­ein­kunnar Íslands, sem gefi til­efni til þol­in­mæði. „Við erum til­búin að taka áhætt­una […] þessu ferli,“ segir Sheehans.

Eins og kunn­ugt er var höftum aflétt að lang­mestu leyti á almenn­ing, líf­eyr­is­sjóði og fyr­ir­tæki, hinn 12. mars síð­ast­lið­inn. Útaf stendur ennþá hluti aflandskrónu­vand­ans, eins og áður seg­ir. Ekki er ljóst enn hversu langan tíma mun taka að leysa hann.

Mark­aðs­gengi evru gagn­vart krónu, er nú 119 krónur. Gengi krónu gagn­vart evru hefur veikst lítið eitt að und­an­förnu, en sé horft til und­an­far­ins árs hefur það styrkst um 15 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None