Íslendingar vilja ekki að ríkið selji hlut sinn í bönkunum

67 prósent landsmanna vilja ekki að ríkið selji hlut sinn í Landsbankanum og um helmingur er á móti því að hlutir þess í Íslandsbanka og Arion banka verði seldir.

Bankar
Auglýsing

Íslend­ingar eru frekar and­vígir því að íslenska ríkið selji hlut sinn í við­skipta­bönk­unum þrem­ur. Mest er and­staðan við að ríkið selji hlut sinn í Lands­bank­an­um, en 67 pró­sent lands­manna eru mót­fallin því. Um helm­ingur (49 pró­sent) vill ekki að ríkið selji hlut sinn í Íslands­banka og 46 pró­sent eru and­víg því að ríkið selji hlut sinn í Arion banka.

Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum Zenter rann­sókna sem fram­kvæmd var dag­anna 1. til 16. mars. Könn­unin var því gerð áður en til­kynnt var um kaup vog­un­ar­sjóða og Gold­man Sachs á stórum hlut í Arion banka um liðna helgi.

Auglýsing

Íslenska ríkið á 98,2 pró­sent í Lands­banka, allt hlutafé í Íslands­banka og 13 pró­sent hlut í Arion banka.

Á milli 21-24 pró­sent lands­manna er hvorki hlynntur né and­vigur sölu á hlut rík­is­ins í bönk­unum þrem­ur. Ein­ungis 13 pró­sent vilja að ríkið selji hlut sinn í Lands­bank­an­um, 27 pró­sent telja rétt að hlut­ur­inn í Íslands­banka verði seldur og 30 pró­sent eru hlynntir sölu á 13 pró­sent hlutnum í Arion banka.

Sam­kvæmt eig­enda­stefnu rík­is­ins er stefnt að því að selja allt hlutafé í Íslands­banka, allan 13 pró­sent hlut­inn í Arion banka og 60-66 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um. 

Könn­unin var net­könnun sem gerð var á meðal könn­un­ar­hóps Zenter rann­sókna. Svar­fjöldi var 1,176 ein­stak­lingar og svar­hlut­fall 51 pró­sent. Gögnin voru vigtuð til að úrtakið myndi end­ur­spegla álit þjóð­ar­inn­ar. Tekið var til­lit til kyns, ald­urs og búsetu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None