Samdráttur í byggingu íbúða í Reykjavík

Færri íbúðir eru í byggingu í Reykjavík nú en í september síðastliðnum, samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins. 3.255 íbúðir eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu öllu. Viðmið um fjölda nýrra íbúða næst ekki á þessu ári.

_abh2214_9954188323_o.jpg
Auglýsing

3.255 íbúðir eru nú í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt nýjum taln­ingum Sam­taka iðn­að­ar­ins. Það er fjölgun um tæp­lega 300 íbúðir frá því í síð­ustu taln­ingu, eða 10%. Langstærsti hluti íbúða sem eru í bygg­ingu eru íbúðir í fjöl­býli, eða 2.947 af 3.255. 308 íbúðir eru í bygg­ingu í rað-, par- og ein­býl­is­hús­um. 

Í þremur sveit­ar­fé­lögum á svæð­inu hefur íbúðum í bygg­ingu fjölgað á þessu tíma­bili, en í þremur sveit­ar­fé­lögum eru færri íbúðir í bygg­ingu núna en í síð­ustu taln­ingu, sem var í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Í öllum  

Í Reykja­vík, langstærsta sveit­ar­fé­lag­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eru nú færri íbúðir í bygg­ingu heldur en í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Þá voru 1.266 íbúðir í bygg­ingu en nú í febr­úar voru þær 1.228. Langstærstur hluti þeirra íbúða sem verið er að byggja eru íbúðir í fjöl­býli, 1.181 tals­ins, á meðan verið er að byggja 34 rað- eða par­hús og 13 ein­býl­is­hús í borg­inn­i. 

Auglýsing

Í Hafn­ar­firði eru einnig færri íbúðir í bygg­ingu nú en síð­ast­liðið haust, 237 íbúðir nú miðað við 268 íbúðir þá. Á Sel­tjarn­ar­nesi er nú verið að byggja 21 íbúð en þær voru 34 í sept­em­ber. 

Í Mos­fellsbæ hefur íbúðum í bygg­ingu fjölgað um tæp­lega 100 á þessu hálfa ári, þær voru 388 í sept­em­ber síð­ast­liðnum en í febr­úar voru 470 íbúðir í bygg­ing­u. Í Garðabæ er fjölg­unin einnig veru­leg. Nú eru 602 íbúðir í bygg­ingu þar miðað við 476 tals­ins í sept­em­ber. Sömu sögu er að segja af Kópa­vogi, en 644 íbúðir eru í bygg­ingu í Kópa­vogi nú en þær voru 526 í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. 

Mesta pró­sentu­aukn­ingin hefur orðið í bygg­ingu ein­býl­is­húsa, 30,9 pró­sent frá því í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Á sama tíma hefur aukn­ingin verið 10,6 pró­sent í fjöl­býl­is­húsum en fækkun um sjö pró­sent í par- og rað­hús­um. 

Spá 1.600 til­búnum íbúðum á þessu ári

Sam­tök iðn­að­ar­ins setja einnig fram upp­færða spá um íbúða­fjölgun fram til árs­ins 2020. Nú er því spáð að á þessu ári verði lokið við bygg­ingu rétt tæp­lega 1.600 íbúða, sem er 200 íbúðum frá við­miði sam­tak­anna um að 1.800 íbúðir þurfi að byggja á ári. Hafin verður bygg­ing á rúm­lega 2.400 íbúðum á árinu að mati SI. 

Á næsta ári fer fjöld­inn upp fyrir við­mið­ið, og lokið verður við 1.921 íbúð. Árið 2019 spá sam­tökin því að lokið verði við bygg­ingu rúm­lega 2.600 íbúða, og sömu sögu verði að segja árið 2020. 

Sýnir nauð­syn betri áætl­ana­gerðar

Hag­deild Íbúða­lána­sjóðs brást við taln­ing­unni í morg­un, og segir hana sýna að spár síð­ustu ára um fjölda nýbygg­inga hafa ekki gengið eft­ir. Byrjað hafi verið að byggja 438 færri íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár en sam­tökin höfðu spáð fyrir ári síð­an. Ein helsta skýr­ingin er talin sú að langan tíma tekur að koma sumum verk­efnum af stað. 

„Hag­deild Íbúða­lána­sjóðs telur að taln­ing Sam­taka iðn­að­ar­ins varpi ljósi á mik­il­vægi bættrar áætl­ana­gerðar í hús­næð­is­málum hér á landi. Áætl­un­ar­gerð í hús­næð­is­málum er eitt af nýjum hlut­verkum Íbúða­lána­sjóðs en með nýlegum breyt­ingum á lögum um hús­næð­is­mál var sjóðnum falið að aðstoða sveit­ar­fé­lög lands­ins við gerð hús­næð­is­á­ætl­ana. Hluti af þeirri vinnu er að spá fyrir um hús­næð­is­þörf á kom­andi árum og sýna fram á lang­tíma­á­ætl­anir um upp­bygg­ingu hús­næð­is,“ segir í til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None