Bæjarfulltrúi segir að loka þurfi verksmiðju United Silicon

Fulltrúi í meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir að búið sé að fara fram á fund með Umhverfisstofnun vegna arseníkmengunar frá verksmiðju United Silicon. Hún vill láta loka henni.

United Silicon ágúst 2017
Auglýsing

Kol­brún Jóna Pét­urs­dótt­ir, bæj­ar­full­trúi Beinnar leiðar í Reykja­nes­bæ, segir að í sínum huga þurfi að loka verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík þar til að starfs­menn hennar hafi náð tökum á öllum þeim vand­ræðum sem þar hafi komið upp. Búið sé að fara fram á fund með Umhverf­is­stofnun í vik­unni og er von­ast til að stofn­unin fáist til að „grípa til ráð­staf­anna sem hugn­ast okkur bæj­ar­búum vel.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book síðu henn­ar. Bein leið myndar meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar ásamt Sam­fylk­ing­unni og Frjálsu afli.



Með færsl­unni deilir Kol­brún frétt RÚVfrá því í hádeg­inu þar sem haft er eftir Krist­ínu Ólafs­dótt­ur, dós­ent í eit­ur­efna­fræðum við lækna­deild Háskóla Íslands, sem segir fulla ástæðu fyrir bæj­ar­búa að hafa áhyggjur af því ef arseník­mengun fer yfir umhverf­is­mörk. Í mati á umhverf­is­á­hrifum fyrir kís­il­verk­smiðj­una var gert ráð fyrir að mesti styrkur arseníks í and­rúms­lofti yrði 0,32 nanógrömm á rúmmetra. Nú mælist styrkur þess hins vegar tutt­ugu­falt meiri og yfir umhverf­is­mörk­um.

Auglýsing

Í frétt RÚV segir Kristín að arseník sé eitt af fáum efnum sem eru skil­greindir krabba­meins­valdar hjá Alþjóða­krabba­meins­stofn­un­inni. Arseník­mengun í lofti valdi lungna­krabba­meini og/eða krabba­meini í húð.

Fengu ekki frest

Kjarn­inn greindi frá því um miðjan marsUnited Sil­icon myndi ekki fá sex mán­aða frest til úrbóta á mengun sem berst frá kís­­il­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Helg­u­vík og öðrum frá­­vikum frá starfs­­leyfi þess, líkt og fyr­ir­tækið hafði óskað eft­­ir. Þetta kom fram í bréfi Umhverf­is­­stofn­unar til United Sil­icon, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­­um.

Því þurfi að fara fram verk­fræði­leg úttekt á hönnun og rekstri verk­smiðj­unn­ar, og Umhverf­is­­stofnun ætl­aði að leita eftir til­­­boðum í slíka úttekt, en það verður gert á kostnað United Sil­icon. Þangað til nið­­ur­­staða liggur fyrir um þörf­ina á umbótum sam­­kvæmt slíkri rann­­sókn má kís­­il­verk­­smiðjan ekki starfa, nema reka einn ljós­­boga­ofn.

Fyr­ir­tækið hafði farið fram á að fá frest­inn til að bæta úr frá­­vikum og ganga frá úrbótum á meng­un­­ar­varna­­bún­­aði og meng­un­­ar­vörnum sem og orsök og upp­­tök lykta­meng­un­ar. Mikið hefur verið fjallað um mengun frá kís­­il­verk­smiðj­unni í fjöl­miðlum und­an­far­ið.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None