Segir stjórnarandstöðuna færa góð verk stjórnarinnar upp á Sjálfstæðisflokk

Þingflokksformaður Viðreisnar finnst stjórnarandstaðan ekki sanngjörn gagnvart Viðreisn og Bjartri framtíð. Formaður Samfylkingarinnar segir Sjálfstæðisflokkinn einráðan í ríkisstjórn.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Þorsteinn Víglundsson, ráðherra Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Þorsteinn Víglundsson, ráðherra Viðreisnar.
Auglýsing

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar, segir að stjórn­ar­and­staðan hafi verið sam­stíga í því að færa góð verk rík­is­stjórn­ar­innar upp á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og þar sé að finna hluta skýr­ing­ar­innar á því að fylgi Við­reisnar mælist jafn lítið og raun ber vitni. Við­reisn mæld­ist með 3,1 pró­sent fylgi í nýlegri könnun miðla 365 og Björt fram­tíð, sem er þriðji flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­inni, mæld­ist með 3,8 pró­sent. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndu hvor­ugir flokk­anna kom­ast inn á þing. Á sama tíma mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 32 pró­sent fylgi, sem er yfir kjör­fylgi.

Hanna Katrín var á meðal gesta á vett­vangi dags­ins í Silfr­inu í dag. Hún sagði að stemmn­ingin hjá stjórn­ar­and­stöð­unni væri að draga Við­reisn niður í fylgi og það væri ekki skemmti­legt að fá svona lélegar kann­an­ir. Hanna Katrín velti því fyrir sér að það gæti verið vegna þess að hún teldi Við­reisn vera meiri ógn en Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði Við­reisn og Björt Fram­tíð hafi gengið Sjálf­stæð­is­flokknum algjör­lega á hönd og að sá flokkur væri ein­ráður í rík­is­stjórn­inni.

Höf­uð­bólið ræður

Hanna Katrín benti á að rík­is­stjórnin sé ekki nema um 80 daga gömul og það væri strax ljóst að sitj­andi rík­is­stjórn hefði leyst ýmis mál á annan hátt en orðið hefði ef Við­reisn væri ekki hluti af henni. Þar nefndi hún til að mynda sjó­manna­verk­fall, sem Hanna Katrín teldi að síð­asta rík­is­stjórn hefði lík­leg­ast leyst með sér­tækri lausn, en útgerð­ar­menn fóru ítrekað fram á að íslenska ríkið tæki á sig hluta launa­hækk­unar sjó­manna með því að gera fæð­is­pen­inga skatt­frjálsa. Hanna Katrín sagð­ist ekki hrædd við það að Við­reisn verði dæmd að verkum sínum síðar meir. Flokk­ur­inn hefði komið fullt af stórum umbóta­málum inn í stjórn­ar­sátt­mála, eins og breyt­ingar á pen­inga­stefnu og varð­andi Evr­ópu­mál.

Auglýsing

Logi sagði það alrangt að stjórn­ar­and­staðan væri að mála Við­reisn og Bjarta fram­tíð í ósann­gjörnu ljósi. Rík­is­stjórnin væri gagn­rýnd harð­lega, enda telji and­stöðu­flokk­arnir hana vera órétt­láta hægri stjórn. Við­reisn og Björt fram­tíð hafi hins vegar gengið Sjálf­stæð­is­flokknum algjör­lega á hönd og sá flokkur væri ein­ráður í þessu stjórn­ar­sam­starfi. „„Menn sjá kannski ekki til­gang­inn að styðja hjá­leið­ina þegar höf­uð­bólið ræð­ur.“

Logi sagði að á þeim skamma tíma sem lið­inn er frá því að rík­is­stjórnin tók við hafi komið fram að þörf sé á grund­vallar­á­tökum um sam­fé­lag­ið. Um jöfn­uð, um skipt­ingu gæða, um hvort að auð­ræðið verði end­an­lega til grund­vallar í íslenskum sam­fé­lagi. Eða hvort hægt verði að ná að taka á þessum mál­um: fátækt, mis­skipt­ingu og órétt­læti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None