Sársaukafull hagræðing og milljarða arðgreiðslur

Bæjaryfirvöld á Akranesi óttast afleiðingar þess ef starfsfólki verður sagt upp í stórum hópum á Akranesi. Útlit er fyrir að svo verði vegna hagræðingar í botnfisksvinnslu fyrirtækisins.

HB Grandi
Auglýsing

HB Grandi til­kynnti um það í dag, að fyr­ir­tækið hygð­ist hætta botn­fisk­vinnslu á Akra­nesi og sam­eina hana vinnsl­unni í Reykja­vík. Sam­tals starfa 93 við botn­fisk­vinnslu á Akra­nesi og 270 í allt hjá fyr­ir­tæk­inu á Akra­nesi.

Á blaða­manna­fundi í dag sagði for­stjór­inn, Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, óljóst hve mörgum verði sagt upp á Akra­nesi eða hvort ein­hver störf verði færð til Reykja­vík­ur. Bæj­ar­stjór­inn, Sævar Freyr Þrá­ins­son, og for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, Vil­hjálmur Birg­is­son, eru ugg­andi vegna þró­unar atvinnu­mála á Akra­nesi, að því er fram kemur í við­tölum við þá á vef RÚV

Vil­hjálmur segir að helsta ástæðan fyrir þess­ari stefnu­breyt­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu sé styrk­ingin krón­unn­ar, hækkun á inn­lendum kostn­aði - þar með talið launum - og þá hefur verð á botn­fiski staðið í stað í næstum tvö ár, sé horft til þeirra afurða sem unnar hafa verið á Akra­nes­i. 

Auglýsing

Gengi hluta­bréfa HB Granda lækk­aði um ríf­lega fimm pró­sent í dag en mark­aðsvirði þessa næst­stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins, á eftir Sam­herja, er nú tæp­lega 59 millj­arðar króna. 

Hagn­aður félags­ins í fyrra um þrír millj­arðar króna, eða um 26,2 millj­ónir evra, en hagn­að­ur­inn árið 2015 var 5,3 millj­arðar króna, eða 44,5 millj­ónir evra, sé miðað við gengi evru gagn­vart krónu nú (evra = 120 ISK).

HB Grandi rek­ur, auk botn­fisk­vinnsl­unn­ar, skipa­verk­stæði, fiski­mjöls­verk­smiðju, loðnu­vinnslu og tvö dótt­ur­fyr­ir­tæki,  Norð­an­fisk og Vignir G. Jóns­son á Akra­nesi. Stefnt er að frek­ari upp­bygg­ingu og efl­ingu þess rekstrar á Akra­nesi, að því er segir í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar. „Í dag er hvorki hafn­ar­að­staða né aðstaða til vinnslu alls botn­fisk­afla ísfisk­tog­ara HB Granda á Akra­nesi en for­svars­menn félags­ins og Akra­nes­bæjar eiga í við­ræðum um mögu­legar breyt­ingar á því,“ segir í til­kynn­ingu HB Granda. 

Stærsti eig­andi HB Granda, með ríf­lega þriðj­ungs­hlut, er Vogun hf., félag þar sem Krist­ján Lofts­son er stærsti eig­andi. Líf­eyr­is­sjóðir eiga einnig stóran hluta. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er þeirra stærst­ur, en hann á 13,1 pró­sent hlut. 

Aðal­fundur HB Granda verður hald­inn föstu­dag­inn 5. maí í mat­sal félags­ins við Norð­ur­garð í Reykja­vík og hefst klukkan 17:00.

Stjórn félags­ins leggur til að á árinu 2017 verði vegna rekstr­ar­árs­ins 2016 greiddar 1 kr. á hlut í arð til hlut­hafa, eða 1,8 millj­arðar króna, (um 15,3 millj. evra á loka­gengi árs­ins 2016), eða 3,8% af mark­aðsvirði hluta­fjár í lok árs 2016.  Arð­ur­inn verði greiddur 31. maí 2017, að þvi er segir til í til­kynn­ingu félags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None