Ágúst og Lýður nefndir í drögunum

Viðskiptaflétturnar sem rannsóknarnefnd Alþingis hefur nú svipt hulunni af teygðu anga sína til aflandseyja.

lýður og ágúst
Auglýsing

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um söl­una á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um, árið 2003, kemur fram að tak­mark­aðar upp­lýs­ingar séu til um félagið félagið Dek­hill Advis­ors, sem fékk hluta hagn­að­ar­ins af Hauck & Auf­häuser við­skipt­un­um.

Félagið fékk 46,5 millj­ónir doll­ara í sinn hlut, upp­hæð sem sam­svarar um fjórum millj­örðum króna í dag.

Nafn félags­ins fannst í gegnum síma­greiðslu en einu upp­lýs­ing­arnar um það eru skrán­ing um stofn­setn­ingu á Bresku Jóm­frúreyjum 25. júlí 2005 með núm­er­inu 668854, að því er segir í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar.

Auglýsing

Sam­dæg­urs

Bak­samn­ingar um Well­ing & Partners voru und­ir­rit­aðir sama dag og S-hóp­ur­inn keypti nær helm­ings­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, eins og rakið er ítar­lega í frétta­skýr­ingum á vef Kjarn­ans í dag, þar sem vísað er til fyrr­nefndar skýrslu. 

Þeir samn­ingar kváðu á um að félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar skildi fá rúm­lega helm­ing hagn­aðar félags­ins í sinn hlut á móti tæp­lega helm­ingi hagn­aðar sem rynni til ann­ars aðila.



Ólafur sagði í yfir­lýs­ingu fyrr í dag að þeir samn­ingar hefðu ein­ungis verið samn­ingar milli tveggja einka­að­ila.

Þegar upp var staðið var sá pen­ingur færður inn á reikn­ing félags­ins Dek­hill Advis­ors Ltd. Þrátt fyrir að Dek­hill hafi fengið greiddar 46 millj­ónir doll­ara kemur það ekki við sögu í við­skiptaflétt­unni fyrr en eignir Well­ing & Partners eru greiddar út. Þá er greiðslan rakin til félags­ins.

Við­skiptaflétta í leynd

Spjótin bein­ast að þessu huldu­fé­lagi og hver sé eig­andi þess. Í skýrslu nefnd­ar­innar seg­ir, að sam­kvæmt gögnum og skjala­drög­um, sem rann­sókn­ar­nefndin afl­aði sér, þá komi nöfn Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, sem oft eru kenndir við Bakka­vör, þar við sög­u. 

Sam­kvæmt gögnum og skjala­drögum átti félagið Jeff Agents Corp. að verða eig­andi Well­ing & Partners með „við­skiptafléttu milli þeirra“ eins og það er orðað í skýrsl­unni. Rann­sókn­ar­nefndin vísar líka til tvennra skjala­draga um raun­veru­legt eign­ar­hald Jeff Agents Corp. Þau eru þó „öll óund­ir­rituð að hluta og því ófull­komin að formi til,“ segir í skýrsl­unni, en að skráðir eig­endur í drög­unum séu Lýður og Ágúst Guð­munds­syn­ir.

Kaupþing er stærsta fyrirtæki Íslandssögunnar, sé horft til markaðsvirðis og umsvifa erlendis. Það féll eins og spilaborg, haustið 2008.



Þeir voru fyrir fall Kaup­þings í hópi stærstu eig­enda bank­ans í gegnum félagið Exista, sem fór með fjórð­ungs­hlut í bank­an­um.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Þriðju sam­komu­lags­drögin bera á hinn bóg­inn með sér að vera milli ann­ars vegar KV Associ­ates S.A. og hins vegar tveggja nafn­greindra íslenskra kaup­sýslu­manna, Lýðs Guð- ­munds­sonar og Ágústs Guð­munds­son­ar, og kveða á um að KV Associ­ates S.A. stýri félag­in­u Jeff Agents fyrir raun­veru­lega eig­endur þess, sem til­greindir eru þeir Ágúst og Lýð­ur­. Drögin bera dag­setn­ing­una 29. jan­úar 2003 en eru á sama hátt og hin tvö fyrr­nefndu aðeins und­ir­rituð af hálfu KV Associ­ates S.A., sem fyrr af Karim Van den Ende, en óund­ir­rit­uð af hálfu hins til­greinda gagn­að­ila, það er þeim Lýði og Ágústi Guð­munds­sonum sem raun­veru­legra eig­enda Jeff Agents sam­kvæmt sam­komu­lags­drög­un­um.

Eng­inn þeirra sem nefndin til­tek­ur, að hafi komið að gerð bak­samn­inga og blekk­inga í tenslum við fyrr­nefnd við­skipti með eign­ar­hlut í Bún­að­ar­bank­an­um, kann­ast við þetta félag. Ekki Bjarki Diego, ekki Hreiðar Már Sig­urðs­son, ekki Ólafur Ólafs­son, ekki Sig­urður Ein­ars­son og ekki Magnús Guð­munds­son. Ágúst og Lýður gera það ekki held­ur, þrátt fyrir að nöfnin finn­ist í drög­un­um.

Þá nefna Stein­grímur Kára­son og Kristín Pét­urs­dótt­ir, sem voru yfir áhættu­stýr­ingu og fjár­stýr­ingu Kaup­þings áður fyrr og á þeim tíma þegar við­skiptin voru fram­kvæmd, ekki félagið í sínum bréf­legu svörum til nefnd­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None