Rannsóknarnefnd: Hauck & Aufhäuser var aldrei fjárfestir í bankanum

Stjórnvöld, almenningur og fjölmiðlar voru blekktir við sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Kaupþing og Ólafur Ólafsson stóðu að blekkingunni.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndarinnar. Finnur Vilhjálmsson saksóknari var starfsmaður hennar.
Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndarinnar. Finnur Vilhjálmsson saksóknari var starfsmaður hennar.
Auglýsing

Ítar­leg skrif­leg gögn sýna með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Lux­em­bo­urg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Well­ing & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Well­ing & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“ 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu um nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem rann­sakað hefur aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003. Það er afdrátt­ar­laus nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að stjórn­völd hafi skipu­lega verið blekkt í aðdrag­anda og kjöl­far söl­unn­ar.

Skýrsla nefnd­ar­innar var afhent klukkan 10 og klukkan 10:30 hefst blaða­manna­fundur þar sem Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ar­inn sem sat í rann­sókn­ar­nefnd­inni, mun fara yfir nið­ur­stöður henn­ar. 

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir enn frem­ur: „Síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verk­um, að Well­ing & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Mar­ine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Mar­ine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Dek­hill Advis­ors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dek­hill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.“

Auglýsing

Í skýrsl­unni, sem verður gerð opin­ber á vef rann­sókn­ar­nefnda Alþingis síðar í dag, er meðal ann­ars að finna tölvu­póst­sam­skipti milli þeirra aðila sem skipu­lögðu blekk­ing­unaa. Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni sýna þau „hvernig íslensk stjórn­völd voru blekkt og hvernig rangri mynd af við­skipt­unum var haldið að fjöl­miðlum og almenn­ingi. Á hinn bóg­inn bendir ekk­ert til ann­ars en að öðrum aðilum innan fjár­festa­hóps­ins sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, S-hóps­ins svo­kall­aða, hafi verið ókunn­ugt um leyni­samn­ing­ana og að þeir hafi staðið í þeirri trú að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi þess hlutar sem hann var skráður fyr­ir.“

Kjarn­inn mun fjalla ítar­lega um skýrsl­una þegar hún hefur verið birt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None