Borgin ætlar að byggja 1.250 íbúðir á ári

Reykjavíkurborg hefur uppfært áætlanir sínar og vill nú að 1.250 íbúðir verði byggðar á ári næstu árin. 2.500 íbúðir eru þegar í byggingu og annað eins hefur verið samþykkt í deiliskipulagi.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg ætlar að ná því að byggja 1.250 íbúðir á ári næstu árin til þess að mæta þörf á hús­næði. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi og svo á borg­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­vík í dag. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri kynnti drög að hús­næð­is­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar á báðum fundn­um. 

Áður hafði verið stefnan að byggja um 700 íbúðir á ári næstu fimm ár, en vegna fjölg­unar starfa og áhrifa íbúða­gist­ing­ar, Air­bnb, þurfi nú að byggja 1.250 íbúðir á ári. 

2.577 íbúðir eru í bygg­ingu í borg­inni, sam­kvæmt því sem fram kemur í drögum að hús­næð­is­á­ætl­un. Mest er upp­bygg­ingin á Hlíð­ar­enda þar sem 600 íbúðir munu rísa, og á RÚV-lóð­inni í Efsta­leiti, þar sem 360 íbúðir munu rísa. 280 íbúðir eiga að rísa í öðrum áfanga Bryggju­hverfis og 203 í Ein­holti og Þver­holt­i. 

Til við­bótar við þetta hefur verið sam­þykkt deiliskipu­lag fyrir 2.750 íbúð­ir, en stærsti hluti þess er í Voga­byggð, þar sem áætl­aðar eru 776 íbúð­ir. Auk þess eru 4.117 íbúðir á svæðum sem eru í skipu­lags­ferli og 9.355 íbúðir á þró­un­ar­svæðum sem eru í skoðun eða und­ir­bún­ingi.

Auglýsing

Frá árs­byrjun þessa árs og til árs­loka 2020 er áætlað að borgin úthluti eða sam­þykki upp­bygg­ingu á um 7.600 íbúð­um. Til við­bótar er áætlað að bygg­ing verði hafin á tæp­lega 4.000 íbúðum á vegum stærri bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja. 

Í Reykja­vík í dag eru tæp­lega 52 þús­undir íbúða og íbúð­ar­ein­ing­ar. Með­al­stærð þeirra eru 110 m2 og fjöldi fer­metra á hvern íbúa er um 45 m2.

Í mati Sam­taka iðn­að­ar­ins á upp­bygg­ingu íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir nokkrum vikum kom fram að 1.228 íbúðir væru í bygg­ingu í Reykja­vík. SI meta íbúðir í bygg­ingu með öðrum hætti heldur en borg­in, sem skýrir þann mun sem er á taln­ing­um. Sam­kvæmt SI eru nú færri íbúðir í bygg­ingu heldur en í sept­­em­ber síð­­ast­liðn­­­um. Þá voru 1.266 íbúðir í bygg­ingu en nú í febr­­úar voru þær sem fyrr segir 1.228. Langstærstur hluti þeirra íbúða sem verið er að byggja eru íbúðir í fjöl­býli, 1.181 tals­ins, á meðan verið er að byggja 34 rað- eða par­hús og 13 ein­býl­is­hús í borg­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None