Segir ekkert hafa verið minnst á hlutdeild Borgunar í söluhagnaði á kynningarfundi

Benedikt Einarsson segir að ekki hafi verið minnst einu orði á hlutdeild Borgunar í hagnaði vegna sölu Visa Europe þegar kaup á hlut í Borgun voru kynnt fyrir honum og föður hans í október 2014. Þeir hafi fyrst heyrt af virðisaukningunni í janúar 2016.

VISA Borgun
Auglýsing

Bene­dikt Ein­ars­son segir að ekki hafi verið minnst einu orði á þá hugs­an­legu virð­is­aukn­ingu sem hlut­deild Borg­unar í sölu­and­virði Visa Europe gæti skilað nýjum eig­endum í fyr­ir­tæk­inu, þegar kaup á hlut rík­is­ins í Borgun voru kynnt fyrir honum og föður hans, Ein­ari Sveins­syni, í októ­ber 2014. Bene­dikt segir að þeir feðgar, sem ákváðu að taka þátt í kaup­un­um, hafi fyrst heyrt af þeirri mögu­legu virð­is­aukn­ingu í jan­úar 2016. Þetta kemur fram í svari Bene­dikts við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun keypti 31,2 pró­sent hlut rík­is­bank­ans Lands­bank­ans í Borgun 24. nóv­em­ber 2014 á 2,2 millj­arða króna. Hóp­ur­inn sam­an­stóð af fjár­festum og stjórn­endum Borg­unar en sá sem fór fyrir verk­efn­inu var fjár­festir­inn Magnús Magn­ús­son. Kaupin fóru fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn. Á meðal fjár­festa sem tóku þátt í kaup­unum var félagið P126 ehf., í eigu Chara­m­ino Hold­ings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg. Eig­andi þess félags er áður­nefndur Einar Sveins­son.

Greint frá virð­is­aukn­ingu í jan­úar 2016

Morg­un­blaðið greindi frá því 20. jan­úar 2016 um að kaup Visa Inc. á Visa Europe gætu skilað Borgun og öðru íslensku greiðslu­korta­­fyr­ir­tæki, Valitor, á annan tug millj­­arða króna.

Auglýsing

Kjarn­inn greindi frá því fyrr á þessu ári að ef Lands­­bank­inn hefði haldið 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut sínum í Borg­un, í stað þess að selja hann haustið 2014, væri virði hlut­­ar­ins að minnsta kosti um 5,9 millj­­arða króna virði, sam­­kvæmt síð­­asta verð­mati sem gert var á hlutn­­um. Auk þess hefði bank­inn fengið rúm­­lega 2,4 millj­­arða króna greidda í arð. Sam­an­lagt hefði hlut­­ur­inn því getað skilað bank­­anum að minnsta kosti 8,3 millj­­örðum króna ef hann hefði verið seldur nú og Lands­­bank­inn notið síð­­­ustu þriggja arð­greiðslna sem greiddar hafa verið út úr Borg­un. Þar skipti mestu máli sú virð­is­aukn­ing sem varð á félag­inu sam­hliða kaupum Visa Inc. á Visa Europe. Lands­bank­inn hefur höfðað mál vegna þessa og telur að upp­lýs­ingum hafi verið leynt frá bank­anum í sölu­ferl­inu.

Tekur undir gagn­rýni á söl­una

Bene­dikt fjall­aði um aðkomu sína og föður síns að kaup­unum í Borgun í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í gær. Sú aðkoma hefur verið gagn­rýnd sökum þess að þeir eru náfrændur Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þegar salan á hlut rík­is­bank­ans í Borgun fór fram.

Í grein­inni segir Bene­dikt að mikið hafi verið gert úr hlut föður síns í þeim við­­skipt­um, en félag í hans eigu keypti um það bil fimm pró­­sent hlut í Borgun í þeim. „Nú þegar rykið hefur sest eftir mold­­viðrið sem þyrlað var upp og stað­­reynd­­irnar liggja fyrir þá er öllum ljóst sem málið skoða að Bjarni hafði hvorki aðkomu né vit­­neskju um fjár­­­fest­ingu föður míns. Bjarni, þá sem fjár­­­mála­ráð­herra, hafði heldur ekk­ert um sölu á hlut bank­ans í Borgun að segja. Ákvörðun um slíkt var ein­ungis á for­ræði banka­­stjóra og banka­ráðs­ins. Það hefur enda eng­inn sem að söl­unni kom haldið öðru fram.“

Benedikt Einarsson.Það megi taka undir gagn­rýni á það hvernig Lands­­bank­inn stóð að sölu­­ferl­inu á Borg­un. Það hafi enda leitt til þess að breyt­ingar voru gerðar á stjórn bank­ans og að Stein­þóri Páls­­syni, fyrr­ver­andi banka­­stjóra, var sagt upp störf­­um.

„Hvað snýr að kaup­verði hlut­anna í Borgun þá hafði hvorki ég né faðir minn neina aðkomu að samn­inga­við­ræðum við bank­ann. Í októ­ber 2014 fengum við kynn­ingu hjá for­svar­s­­manni fjár­­­festa­hóps­ins þar sem okkur var kynnt verk­efn­ið, en und­ir­­bún­­ingur kaupanna hafði þá staðið yfir frá því í mars sama ár. Á þeim tíma sem við fengum kynn­ing­una lá verðið og kaup­­samn­ingur fyrir og beðið var end­an­­legrar stað­­fest­ingar banka­ráðs. Fjár­­­festa­hóp­­ur­inn var á þessum tíma enn í mótun og faðir minn var beð­inn um að taka þátt í kaup­un­um, sem og hann gerð­i.“

Kjarn­inn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn á Bene­dikt og spurði hvort að upp­lýs­ingar um mögu­lega virð­is­aukn­ingu vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe hefðu komið fram á þeim kynn­ing­ar­fundi sem haldin var fyrir þá feðga í októ­ber 2014, mán­uði áður en kaupin voru frá­geng­in. Í svari hans segir að það hafi ekki verið minnst á þau einu orði. „Við heyrðum fyrst af því í jan­úar 2016,“ sagði Bene­dikt enn frem­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None