„Ekkert svigrúm verður til að mæta óvæntum áföllum“

Björgólfur Jóhannsson segir að lækka þurfi vexti og afnema höft að fullu til að stöðva styrkingu krónunnar. Hann segir ríkissjóð eyða jafnharðan öllum tekjum og því sé ekkert svigrúm til að mæta óvæntum áföllum, sem án efa muni verða.

Björgólfur Jóhannsson
Auglýsing

Lækka þarf vexti og afnema að fullu höft til að stöðva hækkun á gengi krón­unnar „sem getur ann­ars ekki endað með öðru en ósköp­um.“ Þetta segir Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­maður Sam­taka atvinnu­lífs­ins,(SA) í ávarpi í árs­skýrslu sam­tak­anna sem birt var í dag. Björgólfur ákvað að hætta for­mennsku í SA eftir síð­asta aðal­fund, sem fór fram í mars. Þar gagn­rýnir hann einnig harð­lega fjár­mála­á­ætl­anir rík­is­sjóðs sem geri ráð fyrir að útgjöld vaxi jafnt of þétt þannig að hann eyði jafn­harðan þeim tekjum sem rík­is­sjóður afl­ar. „Ekk­ert svig­rúm verður til að mæta óvæntum áföllum sem án efa munu verða því Ísland er háskatta­land með rík­is­út­gjöld í hæstu hæð­u­m.“

Hagn­aður má ekki bara fara í arð og laun æðstu stjórn­enda

Í ávarpi for­manns fjallar Björgólfur tölu­vert um mark­mið aðila vinnu­mark­að­ar­ins um bætt vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga. Hann segir að mik­ill ávinn­ingur sé í því fólg­inn fyrir sam­fé­lagið allt að betri vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga nái fram að ganga. „Í skýrslu, sem aðilar ramma­sam­komu­lags­ins fengu Steinar Holden, pró­fessor í Osló til að semja, komu fram brýn almenn varn­að­ar­orð. Íslend­ingar hafi ekki dregið lær­dóm af dýr­keyptri og síend­ur­tek­inni reynslu af ýktum hag­sveiflum þar sem á skipt­ast ofþenslu­skeið og langvar­andi krepp­ur. Launa­hækk­anir sem ekki sam­rým­ast verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans og með­fylgj­andi of hröð kaup­mátt­ar­aukn­ing geti leitt til harka­legrar nið­ur­sveiflu. Að mati Stein­ars verða kjara­samn­ingar að byggja á sam­eig­in­legum skiln­ingi aðila á nauð­syn þess að launa­þró­unin sé sjálf­bær og að „hóf­legar launa­hækk­anir eru almanna­gæði sem koma öllum vel“. Sátt þurfi að ríkja um að nið­ur­staðan sé sann­gjörn og að ekki ríki til­finn­ing um að ákveðnir hópar fái óeðli­lega stóran skerf í sinn hlut. Auk­inn hagn­aður fyr­ir­tækja þurfi að skila sér í auk­inni fjár­fest­ingu en ekki ein­ungis í hærri arð­greiðslum og launum æðstu stjórn­enda.“

Gagn­rýnir kjar­ar­ráð

Björgólfur segir að í nýliðnum febr­úar hafi kjara­samn­ingar í opin­bera geir­anum enn of aftur brotið samn­inga á almennum vinnu­mark­aði. Auk þess hafi úrskurðir kjara­ráðs um laun kjör­inna full­trúa, æðstu emb­ætt­is­manna og for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja gengið þvert á launa­stefn­una sem aðil­ar, þeirra á meðal rík­ið, mót­uðu í SALEK-­sam­komu­lag­inu í októ­ber 2015. „Auð­vitað átti kjara­ráð að leggja launa­stefnu ramma­sam­komu­lags­ins til grund­vallar við ákvarð­anir sín­ar.“

Auglýsing

Björgólfi er svo tíð­rætt um gengi krón­unn­ar, sem hefur haldið áfram að styrkj­ast eftir að kjara­samn­ingar voru und­ir­rit­að­ir. Það hafi meðal ann­ars þau áhrif að kaup­máttur launa hafi auk­ist mun meira en ráð var fyrir gert. „Að sama skapi hefur þrengt að útflutn­ings­fyr­ir­tækjum sem fá færri krónur en áður fyrir fram­leiðslu sína og þjón­ustu. Einnig hefur Seðla­banki Íslands haldið vöxtum hér á landi háum og raun­vextir eru mun hærri hér en í öllum helstu sam­keppn­is­lönd­um. Enn eru höft á fjár­magns­flutn­ingum milli landa sem nauð­syn­legt er að afnema sem fyrst. Lækkun vaxta og afnám hafta eru nauð­syn­legar aðgerðir til að stöðva hækkun gengis krón­unnar sem ann­ars getur ekki endað nema með ósköp­um.“

Þá fer hann yfir gagn­rýni SA á fjár­mála­á­ætl­anir rík­is­sjóðs, sem gera ráð fyrir því að auka útgjöld jafnt og þétt og „eyða jafn­harðan öllum tekjum sem mik­ill hag­vöxtur skilar hinu opin­bera. Ekk­ert svig­rúm verður til að mæta óvæntum áföllum sem án efa munu verða því Ísland er háskatta­land með rík­is­út­gjöld í hæstu hæð­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None