Búið að uppfæra upplýsingar um eignarhald á Morgunblaðinu

Fjölmiðlanefnd hefur uppfært eignarhald á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Enn hafa engar upplýsingar verið gefnar um kaupverð á rúmlega fjórðungshlut í félaginu.

Eyþór Arnalds er skráð með 26,62 prósent eignarhlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Eyþór Arnalds er skráð með 26,62 prósent eignarhlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Auglýsing

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og Mbl.is, var upp­fært á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar í gær, 18. apr­íl. Félagið Ram­ses II, í eigu Eyþórs Arn­alds, er nú skráð með 26,62 pró­sent eign­ar­hlut og er stærsti ein­staki eig­andi Þórs­merkur ehf., eig­anda Árvak­urs. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um kaup­verð á hlutn­um, en Eyþór keypti hann af Sam­herja, Vísi og Síld­ar­vinnsl­unni.

Eyþór er þar með orð­inn stærsti ein­staki eig­andi Árvak­urs. Félög tengd Ísfé­lagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dótt­ur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,38 pró­sent hlut. Auk þess á félagið Legalis 12,37 pró­sent hlut. Eig­endur þess eru m.a. Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Árvak­urs og stjórn­ar­maður í Ísfé­lag­inu, og Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags­ins. Sam­an­lagður hlutur þess­arar blokkar í Árvakri er 42,18 pró­sent. Gunn­laugur Sævar er einnig eig­andi að hlut í Lýsi ehf., sem á 1,97 pró­sent hlut í Árvakri. Bæði Gunn­laugur Sævar og Sig­ur­björn sitja í stjórn þess fyr­ir­tæk­is.

Auglýsing

Aðrir eig­endur eru að mestu aðilar tengdir íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Á meðal Þeirra eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Rammi hf. og Skinn­ey-­Þinga­nes.

Kaup félags Eyþórs á hlut í Þórs­mörk eru háð þeim fyr­ir­vara að aðrir eig­endur nýti sér ekki for­kaups­rétt.

Árvakur hefur tapað 1,5 millj­arði króna frá því að nýir eig­endur tóku við félag­inu 2009 og fram til loka árs 2015. Á þeim tíma hafa þeir eig­endur sett að minnsta kosti 1,2 millj­arða króna í rekstur félags­ins og fengið 4,5 millj­arða króna afskrif­aða hjá Íslands­banka. Tap Árvak­urs var 164 millj­ónir króna á árinu 2015. Árs­reikn­ingur fyrir árið 2016 hefur ekki verið birtur en Har­aldur Johann­essen, fram­kvæmda­stjóri Árvak­urs og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sagði í til­kynn­ingu í fyrra­haust að líkur væru á halla­rekstri á árinu 2016 líka. Sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar var hlutafé Árvak­urs aukið um 7,4 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra og hækk­unin öll greidd með pen­ing­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None