Engin formleg beiðni frá Ólafi Ólafssyni um að koma fyrir nefndina

Ólafur Ólafsson hefur ekki óskað formlega eftir því að koma fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Því liggur ekki fyrir hvort eða hvenær það muni gerast né hvort sá fundur verði opinn fjölmiðlum.

Jón Steindór Valdimarsson, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Jón Steindór Valdimarsson, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son hefur ekki sent form­lega beiðni til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar um að fá að koma fyrir hana og tjá sig vegna kaupa S-hóps­ins á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum snemma árs 2013. Því hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvenær hann muni koma fyrir nefnd­ina, hvort að sá fundur verði opin blaða- og frétta­mönnum né hvort að streymt verði frá honum á vef Alþingis svo að almenn­ingur geti fylgst með. Þetta segir Jón Stein­dór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, sem mun stýra vinnu nefnd­ar­innar um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á stórum hluta í  Bún­­að­­ar­­banka Íslands. 

Brynjar Níels­son, for­maður nefnd­ar­inn­ar, mun ekki taka þátt í þeirri vinnu þar sem hann hefur sam­þykkt að víkja í mál­inu. Ástæðan er sú að Brynjar var um tíma verj­andi Bjarka Diego í saka­máli sem sner­ist um meint efna­hags­brot. Bjarki er einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in, og sner­ist um að blekkja stjórn­völd, almenn­ing og fjöl­miðla til að halda að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser væri á meðal kaup­enda að Bún­að­ar­bank­an­um. Skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sýndi að bank­inn var lepp­ur.

Auglýsing

Ólafur sendi frétta­til­kynn­ingu frá sér fyrir viku síðan þar sem hann sagð­ist hafa farið þess á leit við Brynjar Níels­son, for­mann nefnd­ar­inn­ar, að fá að koma fyrir hana til að „kasta ljósi á þær nýju upp­­lýs­ingar sem ég hafði ekki fengið aðgang að áður og nið­­ur­­stöður eru dregnar af í rann­­sókn­­ar­­skýrsl­unni. Réttur vett­vangur til að bregð­­ast við er að mínu mati fyrir stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd Alþing­is, enda var nið­­ur­­staða rann­­sókn­­ar­­nefnd­­ar­innar kynnt þar.“

Ólafur Ólafsson.Jón Stein­dór segir hins vegar að engin form­leg beiðni hafi borist nefnd­inni frá Ólafi. Hann hafi vissu­lega haft sam­band við Brynjar en að öðru leyti hafi Ólafur „ein­göngu sent út frétta­til­kynn­ingu á fjöl­miðla um sínar ósk­ir.“ Hann segir að málið sé í raun enn á und­ir­bún­ings­stigi í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, og að nefndin hafi sett sér það mark­mið að vanda til verka og ganga skipu­lega til þeirra. Þess vegna muni hún flýta sér hægt. „Verk­lag nefnd­ar­inn­ar, við úrvinnslu skýrsl­unnar og önnur þau verk­efni sem þings­á­lykt­unin sem við erum að vinna málið í sam­ræmi við, er í mót­un. Þar með talin máls­með­ferð, hugs­an­legir gestir og svo fram­veg­is.“

Kom fyrir dóm og sagði ósatt

Ólafur fékk tæki­færi til að koma sinni hlið á mál­inu á fram­færi á meðan að á vinnu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar stóð. Eftir að hafa neitað að mæta til skýrslu­töku var honum á end­anum gert að mæta fyrir dóm og svara spurn­ingum rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar. Þar sagði Ólafur að eftir því sem hann best vissi væru allar þær upp­­lýs­ingar sem íslenska rík­­inu voru veittar um kaup­in, og kynntar voru í fjöl­miðlum sam­hliða kaup­um, verið réttar og nákvæmar, að því er hann best vissi.

Gögn sem nefndin hafði undir höndum sýndu hins vegar með óyggj­andi hætti fram á að svo er ekki. Ólafur var leið­andi í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in, sam­­kvæmt nið­­ur­­stöðum nefnd­­ar­innar. Í henni fólst að Hauck & Auf­häuser var aldrei raun­veru­­legur eig­andi að hlutn­um, Kaup­­þing fjár­­­magn­aði við­­skiptin en ekki þýski bank­inn, Ólafur Ólafs­­son og lík­­­lega Kaup­­þing eða stjórn­­endur þess högn­uð­ust um millj­­arða króna á flétt­unni og Hauck & Auf­häuser var tryggt algjört skað­­leysi.

Þá sagði Finnur Vil­hjálms­­son, starfs­­maður nefnd­­ar­inn­­ar, á blaða­­manna­fundi sem haldin var vegna kynn­ingar á skýrsl­unni: „Ólafur Ólafs­­son stýrði verk­efn­inu fra A til Ö.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None