Lífeyrissjóðunum í hag að fjárfesta jafnt og skipulega erlendis

Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra segir ekki brýna þörf á lagabreytingum til að stuðla að breytingum á fjárfestingastefnu lífeyrissjóða.

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Auglýsing

Starfs­hópur stjórn­valda um erlendar fjár­fest­inga líf­eyr­is­sjóða segir í skýrslu sinni að mik­il­vægt sé fyrir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið að reyna eftir fremst megni að draga úr geng­is­á­hættu með því að byggja upp fyr­ir­sjá­an­leg gjald­eyr­is­við­skipti og að þau verði til­tölu­lega jöfn. Í ljósi umfangs líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, miðað við hlut­fall af lands­fram­leiðslu, þá skipti þetta miklu máli.

Þetta er eitt af því sem fram kemur í ský­slu starfs­hóps­ins sem birt var í dag. Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skip­aði hóp­inn 21. mars og hefur hann nú skilað af sér, tæpum fjórum vikum síð­ar.

Í starfs­hópnum sátu Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, for­mað­ur, Hersir Sig­ur­geirs­son, dós­ent við Háskóla Íslands, Þórey S. Þórð­ar­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu líf­eyr­is­sjóðs og Fjóla Agn­ars­dótt­ir, hag­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Auglýsing

Á tuttugu árum hefur eignasamsetning lífeyrissjóðakerfisins gjörbreyst.

Í skýrsl­unni segir að ekki sé talin þörf á því að breyta lögum til að stuðla að breyt­ingum á eigna­safni líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, þar sem núver­andi lög feli í sér veru­legar heim­ildir til erlendra fjár­fest­inga. Sagt er í skýrsl­unni að fyr­ir­sjá­an­legt sé að líf­eyr­is­sjóðir muni nýta sér þær á næstu árum og ára­tug­um.

Í lok árs í fyrra áttu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eignir erlendis fyrir 764 millj­arða króna en eignir á Íslandi námu 2.750 millj­örð­um. Heild­ar­eignir námu 3.514 millj­örðum króna og voru skráð verð­bréf 993 millj­arðar króna. Á 20 árum hefur eigna­sam­setn­ing líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins breyst mikið að því leyti að mun stærri hluti þess er nú erlendis en var á árum áður. Samt hefur hlut­fallið oft verið meira en það er nú, en ríf­lega 20 pró­sent af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóð­anna er í erlendum eign­um.

Eignir lífeyrissjóðanna, sem hlutfall af landsframleiðslu, hafa vaxið nokkuð undanfarin ár. Endurreisn hlutabréfamarkaðarins hefur að miklu leyti verið keyrð áfram með lífeyrissjóðina sem helstu fjárfesta.

Bent er á það í skýrsl­unni það sé líf­eyr­is­sjóð­unum í hag að gjald­eyr­is­við­skipti þeirra valdi sem minnstum sveiflum á gengi krón­unn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None