Kvika framseldi skuld Pressunnar til fjárfesta

Hluti nýrra eigenda Pressunnar er í eigendahópnum til að innheimta skuldabréf sem hann fékk framselt frá Kviku banka. Bankinn vill ekki gefa upplýsingar um málið sökum trúnaðar við viðskiptavini.

DV og kvika
Auglýsing

Kvika banki fram­seldi skulda­bréf á Pressu­sam­stæð­una – eitt stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins – til eign­ar­halds ehf., í eigu Fann­ars Ólafs­son­ar, Andra Gunn­ars­sonar og Gests Breið­fjörðs Gests­son­ar. Pressan skuld­aði Kviku rúm­lega 60 millj­ónir króna í lok árs 2013 en ekki er hægt að fá upp­lýs­ingar um hversu há skuldin sem var fram­seld var. Í svari Kviku banka við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið kom fram að bank­inn gæti ekki tjáð sig af eða á um mál­ið. Auk þess væri ekki hægt vegna trún­aðar að veita upp­lýs­ingar um hvort ein­hverjar skuldir Pressunnar hefðu verið afskrif­að­ar.

Í fyrra­dag var greint frá því að nýir hlut­hafar væru að taka við Press­unni, sam­stæðu tæp­lega 30 fjöl­miðla. Hún hefur á und­an­förnum árum verið byggð upp af Birni Inga Hrafns­syni og að mestu hefur upp­bygg­ingin farið fram með skuld­settri yfir­töku á fjöl­miðl­um. Þekkt­ustu miðl­arnir í sam­stæð­unni eru DV, DV.is, Eyj­an, Pressan, ÍNN og tíma­rita­út­gáfa Birt­ings. Við aðkomu nýju hlut­haf­anna stígur Björn Ingi til hliðar og verður ekki í neinni stjórn­un­ar­stöðu. Hann mun heldur ekki sitja í nýrri stjórn Pressunn­ar. Eina aðkoma hans verður sem hlut­hafa með á bil­inu 14-16 pró­sent eign­ar­hlut og sem stjórn­anda sjón­varps­þátt­ar­ins Eyjan á ÍNN. Björn Ingi og við­skipta­fé­lagi hans, Arnar Ægis­son, eiga þó einnig kaup­rétt á meira hlutafé en ekki hefur verið upp­lýst hver hann sé. Stærsti eig­and­inn eftir hluta­fjár­aukn­ing­una verður félag sem er stýrt af við­skipta­fé­lög­unum Róberti Wessman og Árna Harð­ar­syni.

Fengu skulda­bréf sem hluta af öðru upp­gjöri

Einn hinna nýju eig­enda Pressunnar er félagið eign­ar­hald ehf. Á meðal þeirra eig­enda þess er Fannar Ólafs­son. Hann segir í sam­tali við Kjarn­ann að aðkomu megi rekja til þess að félagið hafi fengið skulda­bréf á Pressu­sam­stæð­una fram­selt frá Kviku banka sem hluta af öðru við­skipta­upp­gjöri. Það sé hans aðkoma að mál­inu. Hann sé að reyna að fá umrætt skulda­bréf greitt. Í svari frá Kviku við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að bank­inn ekki geta tjáð sig um mál­ið. Hann sagð­ist auk þess ekki geta tjáð sig um hvort Kvika hefði afskrifað ein­hverjar skuldir Pressunn­ar.

Auglýsing

Skuld Pressunnar við Kviku er til­komin vegna þesss að félagið yfir­drátt hjá MP banka, fyr­ir­renn­ara Kviku, fyrir nokkrum árum. Hann var upp á rúm­lega 60 millj­ónir króna í lok árs 2013 Arnar Ægis­son, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Pressunn­ar, stað­festi við Vísi fyrir tveimur árum upp­hæð yfir­drátt­ar­ins og að hann væri hjá MP banka.

Ástæða þess að sú skuld vakti athygli, og var til umfjöll­unar í fjöl­miðl­um, var sú að tvær syst­ur, Malín Brand og Hlín Ein­ars­dótt­ir, reyndu að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, snemma sum­ars 2015. Í fjár­­­kúg­un­­ar­bréfi sem þær sendu hót­­uðu þær að gera opin­ber­ar ­upp­­lýs­ingar sem áttu að koma ráð­herr­­anum illa. Þær snér­ust um að Sig­­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka þegar félagið keypti DV. Sig­­mundur Davíð hefur hafnað því að hann hafi fjár­­hags­­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­­son og að hann hafi komið að kaupum á DV á nokkurn hátt. Björn Ingi sagði sömu­leiðis að for­­sæt­is­ráð­herra hafi ekki fjár­­­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann eigi ekki hlut í blað­inu. Bank­inn vildi sjálfur ekki tjá sig um málið efn­is­lega þar sem hann taldi sig ekki geta rofið trúnað við við­skipta­vini sína.

Kjarn­inn birti í gær ítar­lega frétta­skýr­ingu um þær svipt­ingar sem átt hafa sér stað á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði und­an­farin mán­uð. Þar er meðal ann­ars farið yfir breyt­ing­arnar sem eru að eiga sér stað á Pressu­sam­stæð­unni. Fréttin byggir á þeirri frétta­skýr­ingu. Hana má lesa í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None