13,6 milljarða króna ávinningur vegna VIRK

Meðalsparnaður á hvern einstakling sem þiggir þjónustu hjá starfsendurhæfingarsjóðnum VIRK var 12,2 milljónir króna árið 2016.

VIRK býður upp á starfsendurhæfingarþjónustu til þess að hraða því að fólk nái fótum á atvinnumarkaði.
VIRK býður upp á starfsendurhæfingarþjónustu til þess að hraða því að fólk nái fótum á atvinnumarkaði.
Auglýsing

Ávinn­ingur af starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs­ins VIRK var 13,6 millj­arðar króna árið 2016, sam­kvæmt skýrslu sem Vig­fús Ásgeirs­son, trygg­inga­stærð­færð­ingur hjá Talna­könnun hf., vann fyrir VIRK.

Í til­kynn­ingu frá VIRK segir að reikn­aður með­al­sparn­aður á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling nam 12,2 millj­ónum króna á árinu 2016 og jókst hann frá fyrra ári þegar með­al­sparn­að­ur­inn var met­inn 10,2 millj­ónir króna.

VIRK hefur það hlut­verk að efla starfs­getu ein­stak­linga í kjöl­far veik­inda eða slysa með árang­urs­ríkum hætti og hjálpa ein­stak­lingum að fóta sig á vinnu­mark­aði. Starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð­ur­inn starfar eftir lögum um atvinnu­tengda starfsend­ur­hæf­ingu og starf­semi starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóða frá 2012, en var stofn­aður árið 2008 sem sjálfs­eign­ar­stofnun af sam­tökum stétt­ar­fé­laga og atvinnu­rek­enda. Líf­eyr­is­sjóðir bætt­ust svo í hóp­inn árið 2012 og rík­is­valdið hefur haft aðkomu að sjóðnum síðan 2015.

Auglýsing

Þetta er fjórða árið í röð sem VIRK lætur meta árangur og ávinn­ing af starf­sem­inni út frá óper­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ing­um. Ávinn­ingur af starf­semi VIRK hefur auk­ist nokkuð síðan Talna­könnun gerði fyrstu grein­ing­una árið 2013 þegar ávinn­ingur af starfi VIRK var 9,7 millj­arðar króna.

Reiknaður meðalsparnaður á útskrifaðan einstakling hjá VIRK 2013-2016.

Rekst­ar­kostn­aður VIRK nam 2,4 millj­örðum króna á árinu 2016 og hefur hækkað úr 1,3 millj­örðum árið 2013.

Rekstrarkostnaður og ávinningur af starfi VIRK á árunum 2013-2016.

Í sam­an­tekt sem birt er á vef VIRK sem dag­sett er apríl 2017 segir að 11.500 ein­stak­lingar hafi leitað til starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð­isns frá upp­hafi og að nú séu rúm­lega 2.100 ein­stak­lingar sem þyggi starfsend­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu um allt land. And­legir sjúk­dómar eða stoð­kerf­is­vanda­mál hrjá 70 pró­sent allra skjól­stæð­inga VIRK. 6.500 ein­stak­lingar hafa útskrif­ast frá VIRK og meira en 70 pró­sent þeirra virkir á vinnu­mark­aði við útskrift.

Árs­fundur VIRK er hald­inn á Grand Hótel mánu­dag­inn 24. apríl þar sem Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mun flytja ávarp.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None