Unnur Valborg verður formaður ferðamálaráðs

Ráðherra ferðamála skipar formann og varaformann ferðamálaráðs.

Auglýsing
Unnur Valborg Hilmarsdóttir er nýr formaður ferðamálaráðs.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir er nýr formaður ferðamálaráðs.

Unnur Val­borg Hilm­ars­dóttir hefur verið skip­aður for­maður ferða­mála­ráðs af Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, ráð­herra ferða­mála. Eva Björk Harð­ar­dótt­ir, verður vara­for­maður ráðs­ins. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Ferða­mála­ráð er skipað til fjög­urra ára í senn en skip­un­ar­tími for­manns og vara­for­manns er tak­mark­aður við emb­ætt­is­tíma ráð­herra. Þær Unnur Val­borg og Eva Björk taka við af Þórey Vil­hjálms­dóttur og Páli Mar­vin Jóns­syni sem skip­aðar voru af Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ur, for­vera Þór­dísar Kol­brúnar í emb­ætti.

Unnur Val­borg var skip­aði átt­unda sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust. Þór­dís Kol­brún skip­aði annað sæti fram­boðs­list­ans.

Unnur Val­borg er odd­viti sveit­ar­stjórnar Húna­þings vestra rekur íbúða­gist­ing­una Sól­garð á Hvamms­tanga og á og rekur fyr­ir­tækið Aðstoð­ar­maður ehf. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kenn­ara­há­skóla Íslands og Diploma í við­skipta- og rekstr­ar­fræðum frá End­ur­menntun Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í stjórn­enda­mark­þjálfun frá Opna Háskól­anum og Coach U.

Auglýsing

Eva Björk HarðardóttirEva Björk er odd­viti sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps og hót­el­stjóri Hót­els Laka í Efri­-Vík skammt frá Kirkju­bæj­ar­klaustri, þar sem hún hefur um ára­bil rekið umsvifa­mikla ferða­þjón­ustu. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kenn­ara­há­skóla Íslands.

Hlut­verk ferða­mála­ráðs er að gera til­lögur til ráð­herra um mark­aðs- og kynn­ing­ar­mál ferða­þjón­ust­unnar og vera ráð­herra til ráð­gjafar um áætl­anir í ferða­mál­um. Þá er ætl­ast til að ráðið vieti umsagnir um breyt­ingar á lögum og reglum sem varða ferða­mál.

Ráðið var síð­ast skipað í febr­úar 2015 og hefur skip­un­ar­tíma til árs­ins 2018. Í ferða­mála­ráði eiga eft­ir­far­andi sæti auk nýs for­manns og vara­for­manns: Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, Ingi­björg Guð­jóns­dóttir og Þórir Garð­ars­son, til­nefnd af Sam­tökum ferða­þjón­ust­unn­ar. Aldís Haf­steins­dóttir og Hjálmar Sveins­son, til­nefnd af Sam­bandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Ásbjörn Björg­vins­son og Díana Mjöll Sveins­dótt­ir, til­nefnd af Ferða­mála­sam­tökum Íslands og Jón Ásbergs­son, til­nefndur af Íslands­stofu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None