Laun hækka og kaupmáttur eykst

Laun hafa hækkað um fimm prósent á síðustu 12 mánuðum.

Kaupmáttur jókst og laun hækkuðu  í mars miðað við febrúar.
Kaupmáttur jókst og laun hækkuðu í mars miðað við febrúar.
Auglýsing

Launa­vísi­tala hækk­aði í mars um 0,4 pró­sent frá því í febr­úar að því er fram kemur í nýupp­færðum upp­lýs­ingum Hag­stof­unnar sem birtar voru í dag. Kaup­máttur launa hækk­aði einnig á milli mán­aða, um 0,3 pró­sent frá því í febr­ú­ar.

Umreiknuð árs­hækkun launa­vísi­töl­unnar í mars var fimm pró­sent og hefur ekki verið lægri síðan í apríl árið 2014 þegar hún var 4,8 pró­sent. Tólf mán­aða launa­hækkun hefur mest verið 13,4 pró­sent í apríl í fyrra en síðan hefur hallað undan fæti og nú hækka laun þess vegna hægar en þau hafa gert síðan árið 2014.

Auglýsing

Sé þróun vísi­taln­anna skoðuð frá alda­mótum sést að kaup­mátt­ar­vísi­talan hefur aldrei verið hærri, miðað við við­mið­un­ar­árið 1989. Síðan árið 2010 hefur kaup­máttur launa hækkað stöðugt ár frá ári og náði nýjum hæðum árið 2016.

Árs­með­al­tal kaup­máttar launa 2001-2016

Vísitala kaupmáttar launa frá aldamótum til 2016. Línan sýnir þróun á meðaltal hvers árs.

Þróun launa­vísi­töl­unnar hefur nær ein­göngu verið upp­á­við miðað við við­mið­un­ar­árið 1989. Ekki má greina jafn glögg­lega áhrif efna­hags­hruns­ins 2008 í línu­rit­inu hér að neðan eins og í vísi­tölu kaup­mátt­ar­ins.

Vísi­tala launa jan­úar 2000-mars 2017

Vísitala launa frá áramótum. Línan sýnir stöðu vísitölunnar í hverjum mánuði frá janúar 2000 til og með mars 2017.

Launa­vísi­talan byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hag­stof­unnar og sýnir breyt­ingar á verði vinnu­stundar fyrir fasta sam­setn­ingu vinnu­tíma. Vísi­talan mælir þess vegna laun sem greidd eru fyrir umsam­inn vinnu­tíma en ekki til­fallandi yfir­vinnu eða óreglu­legar greiðsl­ur.

Hag­stofan byggir vísi­tölu kaup­máttar á launa­vísi­tölu og vísi­tölu neyslu­verðs. „Al­mennt eykst kaup­máttur launa þegar laun hækka umfram verð­lag en minnkar þegar verð­bólga er meiri en launa­hækk­an­ir. Hafa þarf í huga að kaup­máttur launa er annar en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna,“ segir á vef Hag­stof­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None