365 miðlar verða næststærsti eigandi Fjarskipta

Í samrunaskrá vegna fyrirhugaðra kaupa Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, á flestum miðlum 365 segir að enginn áhugi sé hjá stórum hluthöfum, eða stjórnendum„að hafa afskipti af ritstjórnarlegu sjálfstæði þeirra fjölmiðla sem heyra undir félagið.“

365 vodafone
Auglýsing

365 miðlar verða næst stærsti eig­andi Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Voda­fone, gangi sam­runi félag­anna eftir með 10,9 pró­sent eign­ar­hlut. Ingi­björg Stef­anía Pálma­dótt­ir, for­stjóri 365 miðla, og félög á hennar vegum eiga um 75 pró­sent hlut í 365 miðl­um. Eig­in­maður henn­ar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, er með pró­kúru í félag­inu Apogee ehf., sem heldur á þorra þess hlut­ar, eða 51,8 pró­sent. Ingi­björg er líka í stjórn 365 miðla og lög­maður á hennar veg­um, Einar Þór Sverr­is­son, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­ast­lið­inn.

Í sam­runa­skránni segir að eng­inn áhugi sé hjá stórum hlut­höf­um, eða stjórn­endum hins sam­ein­aða félags „að hafa afskipti af rit­stjórn­ar­legu sjálf­stæði þeirra fjöl­miðla sem heyra undir félag­ið.“

Skrifað undir í mars

Ritað var undir samn­ing um kaup Fjar­skipta á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­­blaðs­ins og Gla­mour í mars síð­ast­liðn­um. Kaup­verðið er 7.725-7.875 millj­­ónir króna. að greið­ist í reið­u­­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­­skiptum og yfir­­­töku á 4,6 millj­­arða króna skuld­­um.

Fjar­­skipti eru að kaupa sjón­­varps- og útvarps­­­stöðvar 365 auk fjar­­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins og frétta­vefs­ins Vís­ir.is. Helstu sjón­­varps­­stöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­in. Helstu útvarps­­­stöðvar eru Bylgj­an, FM957 og X-ið.

Auglýsing

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Fjar­skipti hélt í til­efni þess að skrifað var undir samn­ing um sam­run­ann í mars kom fram að tekjur þeirra ein­inga sem keyptar verða af 365 hafi verið 8,5 millj­arðar króna á árinu 2016. Í Sam­runa­skránni segir að heild­ar­velta 365 sam­stæð­unnar hafi veri 11,1 millj­arður króna í fyrra. Það þýðir að tekjur þeirra ein­inga sem skildar verða eftir í 365 miðl­um, Frétta­blaðs­ins og Gla­mour, voru um 2,6 millj­arðar króna á árinu 2016.

Áfram sterk eig­enda­tengsl

Við kaupin verða 365 miðlar næst stærsti eig­andi Fjar­skipta með 10,9 pró­sent eign­ar­hlut. Eini eig­and­inn sem mun eiga meira er líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi með 12,2 pró­sent hlut. Ursus, félag núver­andi stjórn­ar­for­manns Fjar­skipta, Heið­ars Guð­jóns­son­ar, mun eiga 5,9 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi. Í ljósi þessa blasir við að 365 miðl­ar, og ráð­andi eig­endur þess, munu geta gert kröfu um að hafa umtals­verð áhrif innan Fjar­skipta, og jafn­vel farið fram á sæti í stjórn félags­ins.

Í ljósi þess að 365 miðlar munu áfram eiga Frétta­blaðið þá verða sterk eig­enda­tengsl áfram á milli fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna tveggja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent